„Deginum ljósara að utanríkisráðherra er ekki treystandi til að sinna þessu máli“

Utan­rík­is­ráð­herra hefur ekki rætt við varn­ar­mála­ráð­herra Tyrk­lands vegna máls Hauks Hilm­ars­sonar. „Til marks um algjöra van­virð­ingu við líf Hauks,“ segir aðstand­andi.

„Deginum ljósara að utanríkisráðherra er ekki treystandi til að sinna þessu máli“
Treystir utan­rík­is­ráð­herra ekki fyrir mál­inu Snorri Páll Jónsson, vinur Hauks, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra.

Utan­rík­is­ráð­herra hefur ekki rætt við varn­ar­mála­ráð­herra Tyrk­lands vegna máls Hauks Hilm­ars­sonar sem sagður er hafa fallið í hern­að­ar­að­gerðum Tyrkja í Sýrlandi þann 24. febr­úar síð­ast­lið­inn. 

Þetta stað­festir María Mjöll Jóns­dóttir, stað­geng­ill upp­lýs­inga­full­trúa, í sam­tali við Stundina. Hún tekur þó fram að ráðu­neytið hafi leitað allra form­legra og óform­legra leiða til að afla upp­lýs­inga um afdrif Hauks. 

Uppfært:
María hafði sam­band eftir að fréttin birt­ist og sagð­ist aðeins geta stað­fest að ráð­herra hefði ekki rætt við varn­ar­mála­ráð­herra Tyrk­lands. Áður kom fram, á grund­velli sím­tals við Maríu, að utan­rík­is­ráðu­neytið stað­festi að hvorki ráð­herra né emb­ætt­is­menn hefðu rætt við varn­ar­mála­ráð­herra eða varn­ar­mála­ráðu­neyti Tyrk­lands. María segir að þar hafi verið um mis­skiln­ing að ræða. Hún geti ekki upp­lýst um hvort utan­rík­is­ráðu­neytið hafi haft sam­band við varn­ar­mála­ráðu­neyti Tyrk­lands með einum eða öðrum hætti, heldur aðeins stað­fest að ráð­herr­arnir áttu ekki fund. Aðspurð hvort full­yrð­ingin „Utan­rík­is­ráðu­neytið hefur ekki haft sam­band við varn­ar­mála­ráð­herra Tyrk­lands vegna máls Hauks Hilm­ars­sonar“ væri röng sagð­ist María ekki geta svarað því. Viðtalið við Snorra Pál hér að neðan verður að skoð­ast í því ljósi að það var tekið áður en María hafði sam­band á ný og var við­bragð við þeirri stað­fest­ingu sem fram hafði komið.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra sagði í við­tali á Morg­un­vakt­inni á RÚV í morgun að við­brögð Tyrkja við umleit­unum íslenskra stjórn­valda vegna leit­ar­innar að Hauki Hilm­ars­syni hefðu „ekki verið nei­kvæð“. Tyrkir hefðu lýst yfir sam­starfsvilja en því miður væri „ekk­ert að frétta“. María segir að sú staða sé óbreytt.

Snorri Páll Jónsson, vinur Hauks til margra ára, furðar sig á að íslensk stjórn­völd hafi ekki haft sam­band við varn­ar­mála­ráðu­neyti Tyrk­lands sem hefur mál­efni hers­ins á sinni könnu.

„Þetta stað­festir þann grun okkar, vina Hauks, sem höfum verið að rann­saka málið sjálf­stætt ásamt fjöl­skyld­unni frá því að fregn­irnar bár­ust í síð­ustu viku, að íslensk stjórn­völd hafi – þvert á eigin yfir­lýs­ingar – ekki gert allt sem í þeirra valdi stendur til að kom­ast að hinu sanna um afdrif Hauks. Það er borð­leggj­andi og aug­ljóst hverjum heil­vita manni að þegar grennsl­ast á fyrir um ein­stak­ling sem tal­inn er hafa fallið eða særst í árásum tyrk­neska hers­ins – og það á svæði sem nú er undir tyrk­neskum yfir­ráðum – þá þarf fyrst af öllu að hafa sam­band við þá aðila sem bera ábyrgð á verkum hers­ins: varn­ar­mála­ráðu­neytið og varn­ar­mála­ráð­herr­ann,“ segir Snorri. 

„Frá upp­hafi hefur mér þótt ómögu­legt að van­treysta ekki Guðlaugi Þór og sam­flokks­fólki hans, enda flokkur þeirra í blygð­un­ar­lausu sam­krulli við flokk Erdogans, Tyrk­lands­for­seta, með veru sinni í bræðra­lagi evr­ópskra íhalds­manna, ACRE. Nú, þegar sú til­finn­ing hefur verið stað­fest, er deg­inum ljós­ara að utan­rík­is­ráð­herra er ekki treystandi til að sinna þessu máli. Sé Haukur ein­hver­staðar á lífi getur hver klukku­stund skipt máli, sér í lagi ef hann er í haldi tyrk­neska yfir­valda eða banda­manna þeirra. Aðgerð­ar­leysið og van­rækslan eru til marks um algjöra van­virð­ingu við líf Hauks. Í ljósi þess­ara upp­lýs­inga blasir við sú aug­ljósa krafa að óháðir aðilar taki héðan í frá við kefl­inu og kom­ist að því hvar Haukur er nið­ur­kom­inn og hvort hann er lif­andi eða lát­inn.“

Guðbjörn Dan Gunn­ars­son, móð­ur­bróðir Hauks Hilm­ars­sonar, greinir frá því á Facebook að hann hafi fundað með Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra í dag. Hún hygg­ist gera hvað hún geti til að hjálpa aðstand­endum Hauks. „Fyrr í dag kom ég við í Stjórn­ar­ráð­inu og bað um að fá að ræða við for­sæt­is­ráð­herra. Hún var á fundi. Ég fékk sím­tal 20 mín­útum síðar og var boðið að koma á fund sem ég gerði,“ skrifar Guðbjörn á Facebook. „Við fórum yfir stöð­una og málið og mun Katrín Jak­obs­dóttir heyra í Guðlaugi Þór og fá upp­lýs­ingar um þeirra aðkomu og bjóða fram aðstoð sína.“

Snorri Páll bendir á að enn liggi ekki fyrir nein stað­fest­ing á því að frétt­irnar af and­láti Hauks séu réttar, hvorki frá tyrk­neskum yfir­völdum né frá kúrdísku her­sveit­unum.

„Það sem okkur finnst svo skrítið, okkur vinum og félögum Hauks, er að eftir rúm­lega 10 daga leit, eftir að fram hefur komið á tyrk­neskum miðlum að tyrk­neski her­inn sé með líkið, þá virð­ist utan­rík­is­þjón­ustan á Íslandi ófær um að fá stað­fest­ingu á því hvort hann sé lífs eða lið­inn.“

Snorri fagnar því að Katrín Jak­obs­dóttir ætli að blanda sér í málið. „En ég verð að segja að það kemur mér á óvart að hún, ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Íslands og for­maður flokks sem hefur staðið fyrir and­stöðu við hernað og veru Íslands í hern­að­ar­banda­lögum, skuli ekki fyrr en nú, 10 dögum eftir að fréttir ber­ast og eftir þrýst­ing frá fjöl­skyld­unni, ákveða að blanda sér í málið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár