111 milljóna skattamáli Jóns Inga vísað frá dómi

Jón Ingi Gíslason, fyrr­verandi formaður Framsóknar­félags Reykja­víkur, gegndi áfram trúnaðar­störfum í flokknum þótt siðanefnd teldi réttast að hann segði sig frá þeim. 

Héraðs­dómur Reykja­víkur vísaði skatta­máli Jóns Inga Gísla­sonar, fyrr­verandi formanns Framsóknar­félags Reykja­víkur, frá dómi í morgun. Málið varðar uppgjör á 44 fram­virkum gjaldmiðla­samningum sem Jón Ingi gerði við Glitni og skiluðu honum tæplega 111 milljónum króna í fjármagns­tekjur árin 2007 og 2008. Hann taldi tekjurnar ekki fram á skatt­framtölum og kom sér þannig undan greiðslu fjármagns­tekjuskatts upp á rúmlega 11 milljónir króna. 

Skatt­rannsóknar­stjóri hóf rannsókn á málinu árið 2011 og vísaði því í fram­haldinu til ríkis­skattstjóra og embættis sérstaks saksóknara, nú héraðs­saksóknara. Samkvæmt niður­stöðu Ríkis­skattstjóra var Jóni Inga gert að greiða skattinn með 25 prósenta álagi, en mál sérstaks saksóknara gegn honum var þingfest árið 2013. Jón Ingi steig í kjölfarið til hliðar sem formaður Framsóknar­félagsins í Reykjavík. „Það hljóta að vera undarlegar sakir að ákæra menn fyrir að telja ekki fram tap, peninga sem menn aldrei fengu, aldrei vissu af og höfðu engan ráðstöfunar­rétt yfir. Þetta voru kallaðar galdra­brennur hér áður fyrr,“ sagði Jón Ingi um málið í samtali við Viðskipta­blaðið árið 2013. 

Héraðs­dómur Reykja­víkur komst aðþeirri niður­stöðu í dag að beiting álagsins hjá skatt­yfirvöldum annars vegar og hins vegar rannsókn sérstaks saksóknara og ákæra í málinu sé reist á sömu annmörkum á skatt­framtölum Jóns Inga. Umrædd mál taki að auki til sama tímabils og varði í aðal­atriðum sömu fjárhæðir. Þá vísar dómurinn til ne bis in idem-reglunnar í Mann­réttinda­sáttmála Evrópu sem leggur bann við tvöfaldri refsimeðferð.

Einnig var litið til heildar­tíma rekstur beggja mála. Jón Ingi hafi verið settur í óhæfilega óvissu um réttar­stöðu sína, enda hafi óþarfa tafir orðið á öllum stigum mála­rekstursins sem Jóni Inga verði ekki kennt um, þar með talið hjá skatt­yfirvöldum og ákæru­valdinu þar sem engar skýringar voru gefnar til réttlætingar á þeirri töf.  

Eins og DV greindi frá í fyrra komst siðanefnd Framsóknar­flokksins að þeirri niður­stöðu að Jóni Inga bæri að stíga til hliðar úr öllum trúnaðar­störfum fyrir Framsóknar­flokkinn á meðan skattamál hans væru til meðferðar fyrir dómstólum. Jón Ingi virðist þó áfram hafa gegnt trúnaðar­störfum fyrir Framsóknar­flokkinn, því samkvæmt vef Reykja­víkurborgar er hann áheyrnar­fulltrúi í stjórn­kerfis- og lýðræðis­ráði Reykja­víkurborgar fyrir hönd Fram­sóknar og flugvallar­vina og var viðstaddur síðasta fund ráðsins þann 26. febrúar síðastliðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár