Ríkisendurskoðun gagnrýnir samband ríkisins við Klíníkina og efast um að fyrirkomulagið samræmist lögum

Í nýrri stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar er því velt upp hvort „þrýst­ingur frá hags­muna­að­ilum“ frekar en fag­þekk­ing hafi áhrif á hvaða þjón­usta lendir á gjald­skrá Sjúkra­trygg­inga.

Ríkisendurskoðun gagnrýnir samband ríkisins við Klíníkina og efast um að fyrirkomulagið samræmist lögum

Það kann að ógna öryggi sjúk­linga að brjósta­skurð­að­gerðir vegna stökk­breyt­ingar í BRCA-genum séu fram­kvæmdar hjá sér­greina­lækni í Klíník­inni og fjár­magn­aðar með öðrum hætti en aðrir hlutar slíkra með­ferða, enda eru þær viða­miklar og kalla á heild­stæða og sér­hæfða sjúkra­hús­þjón­ustu, sér­hæft eft­ir­lit og aðkomu fjölda sér­fræð­inga og heibrigð­is­starfs­manna. 

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoð­unar um kaup Sjúkra­trygg­inga Íslands á heil­brigð­is­þjón­ustu. 

Að mati stofn­un­ar­innar skýtur skökku við að ríkið taki þátt í kostn­aði vegna brjósta­skurð­að­gerða Klíník­ur­innar í Ármúla með þeim hætti sem nú er gert, það er að segja á grund­velli ramma­samn­ings um lækn­ingar utan sjúkrahúsa. Vandséð sé hvernig gera megi við­hlít­andi gæða­kröfur um sér­hæfða sjúkra­hús­þjón­ustu ef hún er keypt á grund­velli umrædds samn­ings.

Bent er á að kaup Sjúkra­trygg­inga Íslands nái ein­ungis til hluta þjónust­unnar en ekki til dæmis til dvalar á legu­deild og í ljósi þess sé vand­séð að kaupin sam­ræm­ist ákvæði sjúkra­trygg­inga­laga um að tryggja beri aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu óháð efna­hag. 

Klíníkin eins og hver annar stofurekstur

Þann 13. des­em­ber 2016, í ráð­herra­tíð Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar, lýsti heil­brigð­is­ráðu­neytið sig ósam­mála túlkun land­læknis á lögum um heil­brigð­is­þjón­ustu og ákvað að líta á rekstur Klíník­ur­innar eins og hvern annan stofu­rekstur lækna sem þyrfti ekki sér­stakt leyfi ráð­herra.

Sem kunn­ugt er hefur  Klíníkin sterk tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Ásdís Halla Braga­dóttir, stjórn­ar­for­maður fyr­ir­tæk­is­ins, er fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Garðabæ, en á meðal hlut­hafa eru Hrólfur Ein­ars­son, náfrændi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra, Guðbjörg Matth­í­as­dóttir, útgerð­ar­kona sem verið hefur einn stærsti hlut­hafi Morg­un­blaðs­ins und­an­farin ár og Ásta Þór­ar­ins­dóttir sem Bjarni Bene­dikts­son skip­aði sem stjórn­ar­for­mann Fjár­mála­eft­ir­lits­ins árið 2015.

Birgir Jak­obs­sonland­læknir

Land­læknir gagn­rýndi nálgun heil­brigð­is­ráðu­neyt­is­ins gagn­vart Klíník­inni og túlkun þess á lögum um heil­brigð­is­þjón­ustu í yfir­lýs­ingu 19. apríl 2017 og taldi vand­séð hvernig heil­brigð­is­yf­irvöld gætu haft stjórn á því hvert opin­bert fjármagn rynni til heil­brigð­ismála ef lögin væru túlkuð með þeim hætti að heil­brigð­is­stofn­anir þyrftu ekki leyfi ráðherra til að veita sérhæfða sjúkrahúsþjónustu. 

Athuga­semdir Rík­is­end­ur­skoð­unar við fyr­ir­komu­lag fjár­mögn­unar á aðgerðum Klíník­ur­innar eru að vissu leyti í anda þeirra sjón­ar­miða sem land­læknir viðr­aði í fyrra. 

„Þrýstingur frá hagsmunaaðilum“ hefur
áhrif á hvaða þjónusta lendir á gjaldskránni

Fram kemur í stjórn­sýslu­út­tekt Rík­is­end­ur­skoðu­anr að mik­il­vægt sé að efla fag­þekk­ingu innan Sjúkra­trygg­inga og getu þeirra til að ann­ast grein­ingar, vinna að gerð samn­inga og hafa eft­ir­lit með fram­kvæmd þeirra. Bent er á að inn­leið­ing nýrrar þjón­ustu hafi verið með þeim hætti að ein­stakir læknar sendi inn umsóknir til Sjúkra­trygg­inga um gjald­skrár­liða og þá komi það í hlut sam­starfs­nefndar Læknafélags Reykjavíkur og Sjúkra­trygg­inga Íslands að fara yfir þær og meta hvort bæta skuli við nýjum gjaldskrárliðum. „Þannig hefur hags­munafélag lækna aðkomu að und­irbúningi ákvörðunar um breyt­ingar á gjaldskránni sem hefur rík áhrif á með hvaða hætti útgjöld ríkis­ins vegna ramma­samn­ings þróast,“ segir í skýrsl­unni. Er það talið sér­stakt áhyggju­efni að Sjúkra­trygg­ingar Íslands búi ekki yfir sömu fag­legu þekk­ingu á þeirri þjónustu sem samið er um og við­semj­endur stofn­un­ar­innar. 

Í þessu sam­hengi er vikið sér­stak­lega að „þrýst­ingi frá hags­muna­að­ilum“ sem hafi áhrif á ákvarð­anir um inn­leið­ingu nýrrar þjón­ustu í heil­brigð­is­geir­anum. „Í þeim viðtölum sem starfs­menn Ríkisend­ur­skoð­unar áttu við ýmsa sérgreina­lækna kom fram að ákvarð­anir um hvaða nýja þjónustu skuli inn­leiða væru ekki byggðar á nægi­lega fag­legum grunni,“ segir í úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar. „Þrýstingur frá hags­muna­að­ilum hefði hins vegar mikil áhrif á þær. Að mati Ríkisend­ur­skoð­unar er mik­il­vægt að full­nægj­andi fag­þekk­ing sé til innan Sjúkra­trygg­inga Íslands til að stofn­unin geti tekið ákvarð­anir um samn­inga og kaup á heil­brigð­is­þjónustu án þess að reiða sig um of á fag­þekk­ingu hags­muna­að­ila.“

Umdeilanlegt að taka skurðaðgerðirnar út fyrir sviga

Kristján Skúli Ásgeirs­sonbrjósta­skurð­læknir

Fjallað er sér­stak­lega um aðgerðir hjá konum sem grein­ast með stökk­breyt­ingu í BRCA-genum sem eykur líkur á brjóstakrabba­meini. Frá og með 2016 hefur verið mögu­legt að gang­ast undir slíka aðgerð hjá sér­greina­lækni í Klíník­inni Ármúla, en sami læknir, Kristján Skúli Ásgeirs­son, hafði áður séð um slíkar aðgerðir á Land­spít­al­anum. 

„Í þessu sam­bandi hafa for­svars­menn Landspítala bent full­trúum Ríkisend­ur­skoð­unar á að líta verði á aðgerðir af þessum toga sem hluta af viða­meiri með­ferð sem kallar á heild­stæða og sérhæfða sjúkrahúsþjónustu. Konur með stökkbreytt BRCA-gen þurfi ekki ein­ungis þjónustu skurð­lækna heldur einnig krabba­meins­lækna, sérfræð­inga í erfða­lækn­is­fræði, hjúkrun­ar­fræð­inga, lífeinda­fræð­inga og fleiri heil­brigð­is­starfs­manna. Einnig þurfi þær sérhæft eft­ir­lit það sem eftir er ævinnar og inn­grip eftir atvikum,“ segir í úttekt Rík­is­end­ur­skoð­unar. „Það sé því umdeil­an­legt að taka ein­ungis þann hluta með­ferð­ar­innar sem snýr að skurð­að­gerðum og fjármagna hann með öðrum hætti en aðra hluta með­ferð­ar­innar. Hugs­an­lega gæti það ógnað öryggi sjúklinga.“ 

Rík­is­end­ur­skoðun telur að gera þurfi skýran grein­ar­mun á kaupum á sér­hæfðri heil­brigð­is­þjón­ustu sem sér­greina­læknar veita á starfs­stofum sínum og hins vegar sér­hæfðri sjúkra­hús­þjón­ustu. Bent er á að sam­kvæmt 7. gr. laga um heil­brigð­is­þjónustu skuli sérhæfð sjúkrahúsþjónusta veitt á Landspítala og Sjúkrahúsinu á Akureyri og öðrum sjúkrahúsum og heil­brigð­is­stofn­unum sam­kvæmt ákvörðun ráðherra eða samn­ingum. „Hvorki liggur fyrir ákvörðun ráðherra né samn­ingur um veit­ingu sérhæfðrar sjúkrahúsþjónustu utan heil­brigð­is­stofn­ana ríkis­ins og skýtur það skökku við að ríkið taki þátt í kostn­aði vegna slíkrar þjónustu á grund­velli ramma­samn­ings um lækn­ingar utan sjúkrahúsa,“ segir Rík­is­end­ur­skoðun sem telur vandséð „hvernig mögulegt er að gera við­hlítandi gæða­kröfur um sérhæfða sjúkrahúsþjónustu ef hún er keypt á grund­velli ramma­samn­ings um lækn­ingar utan sjúkrahúsa“. Þarna er enn vísað til Klíník­ur­innar, þar sem veitt er „sérhæfð sjúkrahúsþjónusta með greiðsluþátttöku Sjúkra­trygg­inga Íslands sam­kvæmt ramma­samn­ingi um lækn­ingar utan sjúkrahúsa“. 

Fram kemur að þótt Sjúkra­trygg­ingar Íslands taki þátt í kostn­aði vegna skurða­að­gerða Klíník­ur­innar taki stofn­unin ekki þátt í kostn­að­inum vegna allra þátta þeirrar heild­rænu með­ferðar sem aðgerðin kallar á. „Þann kostnað, t.d. vegna dvalar á legu­deild, verða sjúklingar að bera sjálfir. Slíkar greiðslur eru ekki á allra færi. Því er vandséð hvernig kaup Sjúkra­trygg­inga Íslands á ein­ungis hluta þjónust­unnar sam­kvæmt ramma­samn­ingi um þjónustu sérgreina­lækna eru í sam­ræmi við 40. gr. laga um sjúkra­trygg­ingar sem til­greinir að við samn­ings­gerð skuli tryggja aðgengi sjúkra­tryggða að þeirri heil­brigð­is­þjón­ustu sem samið er um óháð efna­hag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.

9 mín. lestur

FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

3
Stjórnmál

Hildur segir til­lögu um bóka­söfn hafa verið óheppi­lega orð­aða

Hildur Björns­dóttir borg­ar­stjóri hafnar því að meiri­hlut­inn í Reykja­vík hafi þurft að bakka með áform um hag­ræð­ingu í rekstri Borg­ar­bóka­safns­ins vegna mót­mæla. „Það stendur ekki til að loka bóka­söfnum,“ segir hún. Í til­lög­unni er meðal ann­ars lagt til að skoðað verði hvort hægt sé að fækka rekstr­ar­ein­ingum og sam­eina starf­semi bóka­safna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár