Eldiskvíin sem sökk að hluta í Tálknafirði: Arnarlax rannsakar hvað gerðist

Stjórn­ar­for­maður Arnarlax segir að lax­eld­is­fyr­ir­tækið hafi sent flotrörið sem brotn­aði í eld­is­kví í Tálkna­firði utan til rann­sóknar. Segir engan grun um slysa­slepp­ingar á eld­is­laxi. Málið sýnir meðal ann­ars hversu eft­ir­lit og sam­band lax­eld­is­fyr­ir­tækja við rík­is­stofn­anir er van­þróað á Íslandi.

Rannsókn stendur yfir
Rannsókn stendur yfir Stjórn­ar­for­maður Arnarlax, Kjartan Ólafsson, segir að rann­sókn standi nú yfir hjá fyr­ir­tæk­inu á slys­inu á Tálkna­firði þar sem eld­is­kví brotn­aði og sökk í sjó að hluta. Myndin er frá Tálkna­firði. Mynd: Haukur Sigurdsson

„Við erum að skoða hvað í ósköp­unum hefur gerst þarna. Af hverju rörið er brotið er mér á þess­ari stundu hulin ráð­gáta. Við áttum okkur ekki alveg á því hvað gerð­ist. Við höfum meðal ann­ars tekið plast­bút úr flotrör­inu á kvínni og sent erlendis til grein­ingar,“ segir Kjartan Ólafsson, stjórn­ar­for­maður Arnarlax, í sam­tali við Stundina um eld­is­kví sem skemmd­ist hjá Arn­ar­laxi í Tálkna­firði í síð­ustu viku og sökk niður í sjó­inn að hluta til og mar­aði í hálfu kafi í óljósan tíma.

Stundin greindi frá slys­inu í Tálkna­firði á mánu­dag­inn sem og þeirri stað­reynd að Umhverf­is­stofnun fékk ekki til­kynn­ingu um slysið en Arnarlax lét hins vegar Mat­væla­stofnun og Fiski­stofu vita um óhappið. Kjartan segir að lík­lega hafi þjón­ustu­bátur Arnarlax siglt á kvína með þeim afleið­ingum að flotrör, sem heldur kvínni uppi og er fljót­andi, hafi brotnað. „Það hefur komið í ljós að bátur fór utan í kvína en hversu …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Laxeldi

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár