Margt helsta áhrifafólk landsins fagnaði með Davíð

Fjár­mála­ráð­herra, borg­ar­stjóra­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins og æðsti stjórn­andi Kaup­fé­lags Skag­firð­inga voru á meðal gesta Davíðs Odds­sonar, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins, á sjö­tugs­af­mæli hans. Davíð sagði í ræðu sinni að eina blaðið á Íslandi sem hægt væri að lesa, væri Morg­un­blaðið.

Margt helsta áhrifafólk landsins fagnaði með Davíð
Davíð Oddsson Hér á fund­inum þar sem hann boð­aði til for­seta­fram­boðs árið 2016. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mikill fjöldi áhrifa­fólks í íslensku sam­fé­lagi fyrr og nú heiðr­aði Davíð Oddsson, rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og seðla­banka­stjóra, í sjö­tugs­af­mæli hans í hús­næði Morg­un­blaðs­ins á Hádeg­is­móum í gær. 

Fjallað um afmæli rit­stjór­ansSmartland á Mbl.is fjallar um afmæli rit­stjóra Morg­un­blaðs­ins. Á mynd­unum sést Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, ræða málin við Agnesi Braga­dóttur, blaða­mann Morg­un­blaðs­ins.

Meðal gesta Davíðs voru Þórólfur Gíslason, kaup­fé­lags­stjóri Kaup­fé­lags Skaga­fjarðar, Eyþór Arnalds, fram­bjóð­andi í odd­vita­sæti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Reykja­vík­ur­borg, Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra, Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, Sigríður Andersen dóms­mála­ráð­herra, Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, Ingvi Hrafn Jónsson, fyrr­ver­andi sjón­varps­stjóri ÍNN, Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir, vara­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Logi Bergmann Eiðsson fjöl­miðla­maður, Svan­hildur Hólm Vals­dóttir, aðstoð­ar­kona Bjarna Bene­dikts­sonar, Gunn­laugur Sig­munds­son, faðir Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, for­manns Mið­flokks­ins, auk fjölda fjöl­miðla­fólks sem starfar fyrir Árvakur. Þá voru við­staddir Vil­hjálmur Þ. Vil­hjálms­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, og Ólafur F. Magn­ús­son, einnig fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri.

Í ræðu sinni gagn­rýndi meðrit­stjóri Davíðs, Haraldur Johann­es­sen, núver­andi borg­ar­yf­ir­völd fyrir að hugsa ekki um hag skatt­greið­enda, eins og Davíð. 

Fjallað er um afmæli Davíðs á mbl.is og myndir birtar af gest­unum. 

Fram kemur á Vísi.is að Davíð hefði í ræðu sinni sent öðrum íslenskum prent­miðlum með þeim orðum að ekk­ert blað væri hægt að lesa á Íslandi annað en Morg­un­blaðið. „Reyndar er ekk­ert annað blað í land­inu, satt best að segja. Ekki sem hægt er að lesa. Það er til blað sem vitað er að ein­hverjir fletti en ég hef ekki enn hitt neinn sem les það,“ sagði hann.

Sama dag hafði Morg­un­blaðið birt langa lof­grein um Davíð og störf hans. Höfundur grein­ar­innar er Hannes Hólm­steinn Giss­ur­ar­son, sem leggur nú loka­hönd á skýrslu um erlenda áhrifa­þætti íslenska efna­hags­hrunið, en nið­ur­staða hans í grein­inni stang­að­ist í meg­in­at­riðum á við nið­ur­stöðu Rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis vegna hruns bank­anna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár