Húsleit á Arnarnesinu hjá fiskútflytjanda úr Panamaskjölunum: „Ég hef ekkert að fela“

Sigurður Gísli Björns­son grun­aður um stór­felld skattaund­an­skot. Eignir hans hafa verið frystar og hald lagt á banka­reikn­inga. Hann sagð­ist ekki hafa neitt að fela en neit­aði að ræða um skatta­skjóls­fé­lagið Freezing Point Corp. Hluti af stærri rann­sókn á við­skipta­vinum Nordea-bank­ans í Lúx­em­borg.

Húsleit á Arnarnesinu hjá fiskútflytjanda úr Panamaskjölunum: „Ég hef ekkert að fela“
Panama­fé­lag Sigurðar Gísla milli­liður Panama­fé­lag í eigu Sigurðar Gísla var milli­ður í við­skiptum og fékk greiddar tug­millj­ónir króna á árunum 2010 og 2011. Mynd: Eva Björk Ægisdóttir

„Eftir að ég las þessa „frétt“ þá er svarið nei,“ sagði Sigurður Gísli Björns­son, eig­andi fisk­út­flutn­ings­fyr­ir­tæk­is­ins Sæmarks, í við­tali við Frétta­tím­ann síðla árs 2016 þegar hann var spurður að því hvernig hann gæti útskýrt við­skipti eign­ar­halds­fé­lags í Panama sem hann átti og upp­lýs­ingar voru um í Pana­ma­gögn­unum. Sæmark er öfl­ugt fyr­ir­tæki í fisk­út­flutn­ingi og hefur verið með tekjur upp á 7 til 9 millj­arða króna síð­ast­liðin ár.

„Ég hef ekk­ert að fela.“

Frétta­tímin hafði fjallað um við­skipti Sigurðar Gísla og sagði hann meðal ann­ars að hann hefði ekk­ert að fela en hann neit­aði jafn­framt að svara spurn­ingum blaðs­ins: „Prentaðu bara blaðið þitt. Ég hef ekk­ert að fela.“

Frétta­blaðið greinir frá því í dag að hús­leit hafi verið gerð á heim­ili Sigurðar Gísla á Arn­ar­nes­inu undir lok síð­asta árs vegna rann­sóknar emb­ættis skatt­rann­sókn­ar­stjóra á skatta­skilum hans en hann er grun­aður um „stór­felld skattaund­an­skot“ eins og það er orðað í Frétta­blað­inu. Eignir Sigurðar Gísla voru sömu­leiðis frystar og hald lagt á banka­reikn­inga í hans eigu sam­kvæmt blað­inu. Þetta er raunar ekki í fyrsta sinn sem fjöl­miðlar 365 segja frá málum sem tengj­ast heim­ili Sigurðar Gísla því í apríl í fyrra var umfjöllun um það í þætt­inum Falleg íslensk heim­ili á Stöð 2 sem vakti tals­verða athygli.  

Reikn­ing­ur­inn úr Panama­skjöl­unumReikn­ing­inn frá Freezing Point Corp úr Panama­skjöl­unum má sjá hér en hann hljóð­aði upp á rúm­lega 300 þús­und evrur, 40 millj­ónir króna, og átti að greið­ast af kýp­versku fyr­ir­tæki.

Fékk 40 milljónir í skattaskjól

Frétta­tím­inn fjall­aði um mál hans í fyrra en sam­kvæmt reikn­ingnum í Panama­skjöl­unum, sem Stundin hefur einnig undir höndum, fékk Panama­fé­lag í eigu Sigurðar Gísla, Freezing Point Corp, greiddar þókn­anir upp á tug­millj­ónir króna á árunum 2010 og 2011 frá fyr­ir­tæk­inu AMIH Limited á Kýpur. Stjórn­andi þess fyr­ir­tækis er Íslend­ing­ur­inn Sveinn Helgason, starfs­maður sænska Nordea-bank­ans í Lúx­em­borg sem er við­skipta­banki Panama­fé­lags­ins. 

Eins og kom fram í Frétta­tím­anum er að finna í  Pana­ma­gögn­unum reikn­inga gefna út af Freezing Point Corp upp á tæp­lega 300 þús­und og rúm­lega 300 hund­ruð þús­und evrur, tæpar 40 millj­óna króna á gengi dags­ins í dag. Reikn­ing­arnir, sem eru frá árunum 2010 og 2011, eru stíl­aðir á fyr­ir­tæki í Níkósíu á Kýpur sem heitir AMIH Limited en stjórn­andi þess fyr­ir­tækis er áður­nefndur Sveinn Helgason sem kemur fyrir marg­sinnis í Panama­skjöl­unum vegna starfa sinna fyrir Íslend­inga sem not­uð­ust við eign­ar­halds­fé­lög sem stofnuð var í gegnum pana­ma­ísku lög­manns­stof­una Mossack Fonseca. 

Á reikn­ing­unum kemur fram að um sé að ræða umboðs- og milli­liða­greiðslur fyrir til­tekin ár, 2010 og 2011, en ekki er tekið nánar fram í hverju þjón­usta Panama­fé­lags­ins við kýp­verska félagið felst. Á einum reikn­ingnum kemur fram að greiðslu­máti á að minnsta kosti hluta upp­hæð­ar­innar á öðrum reikn­ingnum skuli vera greiðsla á reiðufé inn á banka­reikn­ing Freezing Point. Pana­ma­ískir stjórn­ar­menn félags­ins skrif­uðu svo undir reikn­ing­ana eins og sagði í Frétta­tím­anum.  

„Þetta var hefð sem Richard tók í arf frá eldri kyn­slóðum íslenskra kaup­sýslu­manna.“ 

Þekkt leið í millilandaviðskiptum

Þó ekki liggi fyrir nákvæm­lega með hvað hætti Freezing Point Corp var notað og af hverju þá bendir upp­setn­ing við­skipt­anna til þess að félagið hafi verið ein­hvers konar milli­liður í við­skiptum Sigurðar Gísla og eða Sæmarks og að hann hafi fengið greiddar umboðs­greiðslur til umrædds félags. Slíkt fyr­ir­komu­lag í milli­landa­við­skiptum frá Íslandi og öðrum löndum er alþekkt og kannski alræmt þar sem hluti hagn­að­ar­ins sem verður til í við­skiptum er skil­inn eftir óskatt­lagður í öðrum löndum en því þar sem fyr­ir­tækið og eða eig­endur þess eru með skatta­lega heim­il­is­festi. 

Að íslensk fisk­út­flutn­ings­fyr­ir­tæki eða eig­endur þeirra geymi fé erlendis sem rekja má til umboðs­launa eru alls ekki ný tíð­indi og margoft hefur komið í opin­berri umræðu á Íslandi. Þekktasta dæmið um slíkt er lík­lega Richard Thors, einn af sonum Thors Jensen og stjórn­andi útgerð­ar­fé­lags­ins Kveld­úlfs, sem átti leyni­lega eign­ar­hluti í erlendum fyr­ir­tækjum sem keyptu fisk af íslenskum fyr­ir­tækjum og þáði frá þeim umboðs­laun á fyrri helm­ingi síð­ustu aldar. Í bók Guð­mundar Magn­ús­sonar um Thors-fjöl­skyld­una frá 2005 sagði að slík umboðs­laun hafi „aldrei“ verið talin fram til skatts. Guð­mundur taldi þessa við­skipta­hætti nán­ast eðli­lega á þessum tíma og sagði. „Þetta var hefð sem Richard tók í arf frá eldri kyn­slóðum íslenskra kaup­sýslu­manna.“ 

„Virðist Ísland stefna í að setja heims­met í hlut­falls­legri þátt­töku lands­manna í því alþjóð­arugli sem aflands­heim­ur­inn hefur að geyma.“

Alræmt heimsmet Íslendinga 

Umfjöllun Frétta­tím­ans um Sigurð Gísla og Freezing Point var hluti af stærri umfjöllun um íslenska útgerð­ar­menn, fisk­út­flytj­endur og skipa­sala í Panama­skjöl­unum sem urðu að frétta­efni um vorið 2016. Eins og komið hefur fram átti ekk­ert land í heim­inum eins marga full­trúa í Pana­ma­gögn­unum og Ísland, miðað við höfða­tölu. Sem dæmi má nefna að um 600 Íslend­ingar koma fyrir í gögn­unum, 500 Svíar, jafn­vel þó þrjá­tíu sinnum fleiri búi í Svíþjóð en á Íslandi, og ein­ungis 200 Norðmenn. Íslend­ingar eiga því einnig Norð­ur­landa­met í fjölda ein­stak­linga og fyr­ir­tækja í gögn­unum. 

Eins og Skúli Eggert Þórð­ar­son rík­is­skatt­stjóri og Ingvar J. Rögn­valds­son vara­rík­is­sak­sókn­ari bentu á í leið­ara í Tíund, rits emb­ætt­is­ins, í maí 2016: „Íslend­ingar voru þannig ekki aðeins mestir og bestir í við­skiptum eins og haldið var fram þegar útrásin stóð sem hæst, með styrkum stuðn­ingi ólík­leg­asta fólks, heldur virð­ist Ísland stefna í að setja heims­met í hlut­falls­legri þátt­töku lands­manna í því alþjóð­arugli sem aflands­heim­ur­inn hefur að geyma.“ 

Hluti af stærri rann­sóknHús­leitin hjá Sigurði Gísla var hluti af stærri rann­sókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra á íslenskum við­skipta­vinum Nordea-bank­ans í Lúx­em­borg.

Hluti af rannsókn á Nordea-bankanum

Rannsókn skatt­rann­sókn­ar­stjóra á Sigurði Gísla Björns­syni er hluti af stærri rann­sókn emb­ætt­is­ins á íslenskum við­skipta­vinum Nordea-bank­ans í Lúx­em­borg, líkt og Frétta­tím­inn greindi frá í febr­úar 2017.  Embættið athug­aði við­skipti tæp­lega 30 Íslend­inga sem voru við­skipta­vinir sænska Nordea-bank­ans í Lúx­em­borg á síð­ustu og áttu margir hverjir í beinu við­skipta­sam­bandi við áður­nefndan Svein Helgason sem var fyr­ir­svars­maður kýp­verska félags­ins sem greiddi reikn­ing­ana sem skatta­skjóls­fé­lag Sigurðar Gísla Björns­sonar gaf út.

Málin 30 voru hins vegar  ein­ungis hluti þeirra sem emb­ættið hafði til skoð­unar sem tengj­ast skatta­skjólum og Panama­skjólum.  Eins og Frétta­tím­inn greindi frá í febr­úar 2017 voru Íslend­ingar fjöl­menn­astir á lista yfir við­skipti við pana­ma­ísku lög­manns­stof­una Mossack Fonseca í gegnum Nordea árið 2016. Alls voru 27 Íslend­ingar við­skipta­vinir Nordea bank­ans í Lúx­em­borg og Mossack Fonseca en næst þar á eftir voru Rússar, 25 tals­ins, og svo 19 Danir. Þessar upp­lýs­ingar koma fram í skýrslu sem Nordea bank­inn vann um skatta­skjóls­við­skipti við­skipta­vina bank­ans í gegnum Mossack Fonseca.

Í við­tali við Frétta­tím­ann í febr­úar sagði  Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri að rann­sóknin á Íslend­ing­unum 30 væri stutt á veg komin og að emb­ættið hefði ekki farið í neinar aðgerðir út af þeim, til dæmis hús­leitir: „Þessi gögn eru nokkuð nýlega komin í hús og er nú verið að fara yfir þau og greina,“ sagði hún en raunin virð­ist vera önnur nú í ljósi hús­leit­ar­innar hjá Sigurði Gísla.

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

Myndband10 mín. lestur

Mest lesið

4
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár