Kárahnjúkavæðing Surtseyjar

Und­ir­ferli eftir Oddnýju Eir Ævars­dóttur.

Kárahnjúkavæðing Surtseyjar

Það eru dul­ar­fullir hlutir að ger­ast í Vest­manna­eyjum. Þar eru tveir vís­inda­menn, þau Íris og Smári, föst í óra­löngum yfir­heyrslum. Við vitum lengst af ekki út af hverju, enda virð­ast þau ekki vita það heldur. En við sögu koma dul­ar­full veira úr Surtsey sem virð­ist dáin og dul­ar­fullt tæki sem Smári er með í smíðum. Seinna kemur svo í ljós að ein sam­starfs­kona þeirra liggur í dái og þau fer að gruna Aron, sam­eig­in­legan yfir­mann sinn og barns­föður Írisar, um græsku.

Smári og Íris eru æsku­vinir sem fundu hvort annað aftur – og mögu­lega er ein­hver ást núna að kvikna. En yfir­heyrsl­urnar hafa aðskilið þau, núna segja þau tvö sög­una til skiptis, ýmist hjá lög­reglu­yf­ir­völdum eða sál­fræð­ingum – en þær raddir heyr­ast aldrei.

Þarna liggur stærsti veik­leiki bók­ar­innar, þetta form ein­fald­lega virkar ekki. Þau virð­ast ein­stöku sinnum bregð­ast við þeim sem eru að yfir­heyra þau, en það er sjald­gæft og sjaldan sann­fær­andi – yfir­heyrslan verður ekki jafn þrúg­andi og mætti ætla en um leið eru þau ein­kenni­lega form­leg í öllu orða­vali. Maður hefði kannski getað skrifað það á vís­inda­bak­grunn beggja, hugsað sér að þetta væri kennt í ein­hverri raun­vís­inda­deild­inni – en fljót­lega kemur í ljós að þau eru ekki sér­stak­lega hefð­bundnir vís­inda­menn heldur.

Mútandi vampírur

Þegar á líður koma þó umhverf­is­vernd­ar­þræðir bók­ar­innar betur í ljós. Sagan ger­ist í Vest­manna­eyjum og bæði eru þau að rann­saka veirur úti í Surtsey. Þegar á líður fer les­andi að átta sig á að Surtsey er hálf­gerður stað­geng­ill Kára­hnjúka í sög­unni, óspjall­aða land­svæðið sem nú er ógnað af ágangi kap­ít­alist­anna. Smári ályktar á einum stað að veiran dul­ar­fulla, yfir­mað­ur­inn vafa­sami og konan hans, sem liggur í dái, séu komin með vam­p­íru­veiruna og seinna er vam­p­ír­ismi heim­skap­ít­al­ism­ans færður beint í orð:

„Mútu­pen­ingar eru engir smá­pen­ingar og það vita allir sem vilja vita að í kringum auð­lindir og auðnir heims­ins eiga sér stað mútu­greiðslur, ekk­ert fer eftir heið­ar­legum boð­leiðum, leiðin er sund­ur­grafin af und­ir­förlum smá­krimmum og ósvífnum stór­herrum sem múta og þiggja mútur. Þeir ætla að eigna sér nátt­úr­una og ein­oka ork­una og auðn­ina, hvað sem það kostar. Hinar einu sönnu vam­p­írur.“

Á stöku stað eru líka áhrifa­miklar lýs­ingar á Surtsey og Vest­manna­eyjum í kringum gos – en bókin finnur sér ekki almenni­lega fókus, hvorki fer hún alla leið í að nýta sér mögu­leika yfir­heyrslu­forms­ins, magna upp para­noj­una og inni­lok­un­ar­kennd­ina, en það form kæfir þó ein­hvern veg­inn mögu­leik­ann á að fara alla leið í umhverf­is­vernd­ar­dramanu sem býður þó upp á ýmsa mögu­leika.

Bókin snertir þó á fleiri hlutum – og eitruð karl­mennska er þar á meðal (þótt vissu­lega séu tengifletir þar við óheftan ónátt­úru­vænan kap­ít­al­isma). Andlegu ofbeldi Arons gegn Írisi eig­in­konu sinni er ágæt­lega lýst, bæði fyrir og eftir hjóna­band – maður veit ekki alveg hversu alvar­legt það var og er þar álíka ringlaður og Íris sjálf, en þegar sam­skipti hans við alla aðra virð­ast sama merki brennd þá stað­festir það óljósa upp­lifun hennar betur.

Smári hefur svo pata af þessu – það er dálítið eins og hann ótt­ist að Aron gæti smitað hann af erfða­synd­inni sem hann tengir karl­mennsk­una við:

„Æ, maður er orð­inn svo óör­uggur með sjálfan sig sem karl­mann, vit­andi af karl­rembunni í menn­ing­unni sem maður fæð­ist inn í. Sama hversu með­vit­aður maður er, þá er hluti af manni í skekkju sem maður er að rétta af allt lífið.“

Dularfulla veiran og tilfinningamælirinn

Framan af virð­ist Íris afskap­lega sam­visku­samur vís­inda­maður sem gerir allt eftir bók­inni en Smári öllu villt­ari sveim­hugi. Eftir því sem á líður tekur þó alls kyns kukl, dul­speki og nor­ræn goða­fræði við af vís­ind­unum og á einum stað full­yrðir Smári meðal ann­ars: „Já, en öll vís­indi eru hálf­gert kukl á ein­hverju frum­stigi, ekki satt?“

Þessi umbreyt­ing verður þó aldrei almenni­lega sann­fær­andi – og á einum stað fyrr í bók­inni er hinni sam­visku­sömu Írisi meira að segja stillt upp sem hálf­gerðri and­stæðu Söru, sem virð­ist mögu­lega ofsa­trú­ar­mann­eskja inn við beinið þótt hún eigi að kall­ast raun­vís­inda­mann­eskja.

„Tengsl vís­inda, dul­speki og goða­fræði er sann­ar­lega frjór og skemmti­legur jarð­vegur í skáld­skap – en hér er stökkið á milli of auð­velt, of átaka­laust.“

Tengsl vís­inda, dul­speki og goða­fræði er sann­ar­lega frjór og skemmti­legur jarð­vegur í skáld­skap – en hér er stökkið á milli of auð­velt, of átaka­laust. Eins er glíman við bæði veiruna dul­ar­fullu og tækið hans Smára of loft­kenndar. Sér­stak­lega er veiran – fyrir utan for­vitni­legar en óvís­inda­legar kenn­ingar Smára um vam­p­írur – ótta­legur McGuffin – en það kall­aði Hitchcock þá hluti í skáld­skap sem virð­ast öllu máli skipta en eru í raun bara afsökun fyrir hasar­inn. En hér vantar því miður hasar­inn og spenn­una til þess að rétt­læta þennan McGuffin, þess í stað veltum við veirunni fyrir okkur og fáum engin svör.

Tækið sem Smári smíð­aði virð­ist svo vera ein­kenni­leg nýald­ar­blanda af tæki sem nemur til­finn­ingar og heil­indi og minnir á margt á lyga­mæl­inn alræmda. En lyga­mælir er vafa­samt tæki og getur verið gott hjálp­ar­tæki í alls konar fas­isma, en sú krítíska sýn sem þyrfti á tækið er aldrei til staðar hér – hún er þess í stað aðeins loft­kennd hug­mynd Smára til að átta sig á öðru fólki. Mögulega veik­burða til­raun til þess að bregð­ast við því hvað hann sjálfur er vondur mann­þekkj­ari, eða eins og hann segir þegar hann áttar sig á að Aron hafði blekkt hann eins og Írisi: „Fyrst ég var svona lengi að átta mig þá er greini­lega þörf á tæk­inu! Þörf fyrir alla þá sem vilja átta sig á ofbeldi áður en það er orðið um seinan.“

En hann virð­ist sjaldan leiða hug­ann að því hversu hættu­legt slíkt tæki gæti verið – og jafn­vel far­vegur fyrir ann­ars konar ofbeldi.

Yggrasill og Freyjueyja

Bókinni er skipt í þrjá hluta og sá síð­asti er lang­best skrif­aður og afslapp­að­astur. Þar fer bókin meira út í goða­fræð­ina, sem virkar betur en dul­spekin og alþýðu­fræðin, og sér­stak­lega er hið goð­magn­aða tré Yggras­ill sann­fær­andi teiknað upp bæði sem mögu­leg tákn­mynd útlend­inga­hat­urs sem og fjöl­menn­ingar, allt eftir hvernig það er túlkað. Sem hefur raunar stundum verið vandi nátt­úru­verndar – þótt vand­inn sé alþjóð­legur þá á hún það til að daðra hættu­lega mikið við þjóð­ern­is­hyggju.

Svo er jöt­unn­inn Surtur bein­tengdur Surtsey – og þeirri hug­mynd er kastað fram að end­ur­nefna eyj­una svo ekki sé daðrað að óþörfu við Ragnarök – þar sem Surtur var jú einn aðal­ger­and­inn. Eyjan ætti frekar að vera griða­staður þeirra sem hvergi ann­ars staðar geta verið, Freyju­eyja nátt­úru­gyðj­unnar.

En loka­nið­ur­staðan af þessum yfir­heyrslum er þó ein­fald­lega sú að þetta er bók sem er stút­full af góðum hug­myndum – en þær eru margar hálf­kar­aðar og lítt sann­fær­andi. Oft and­vana fæddar og loft­kenndar, pínu­lítið eins og tækið hans Smára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár