Bann á umfjöllun Stundarinnar framlengist út árið 2017

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hefur ákveðið að aðal­með­ferð í máli þrota­bús Glitnis gegn Stund­inni fari fram þann 6. jan­úar 2018. Því verður lög­bann á umfjöllun Stund­ar­innar við lýði fram á næsta ár hið minnsta.

Bann á umfjöllun Stundarinnar framlengist út árið 2017
Umfjöllun Stund­ar­innar Eftir umfjöllun Stund­ar­innar um við­skipti for­sæt­is­ráð­herra með bréf tengd Glitni, sam­hliða aðkomu hans að mál­efnum bank­ans sem kjör­inn full­trúi, fékk Glitnir sam­þykkt lög­bann á frek­ari frétta­flutn­ing.

Lögbann á fréttir Stund­ar­innar upp úr gögnum, sem sögð eru koma úr þrota­búi Glitnis, verður áfram við lýði út þetta ár hið minnsta. Þetta er orðið ljóst eftir að dóm­ari við Hér­aðs­dóm Reykja­víkur boð­aði að með­ferð dóms­máls um lög­bannið yrði ekki haldið áfram fyrr en 6. jan­úar 2018.

Í dóms­mál­inu stefnir þrotabú Glitnis, Glitnir Holding, Stund­inni fyrir dóm, til að freista þess að fá stað­fest­ingu á lög­banni sem Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík lagði  á umfjöllun Stund­ar­innar upp úr til­teknum gögnum sem þrota­búið gerir kröfu til. 

Inngrip í umfjöllun sem varðar ráðherra

Lögbann var sett á Stundina og Reykja­vik media mánu­dag­inn 16. októ­ber, þegar full­trúar sýslu­manns­ins í Reykja­vík fyr­ir­vara­laust á skrif­stofu Stund­ar­innar ásamt lög­manni Glitnis og til­kynntu að lög­bann yrði lagt á áfram­hald­andi umfjöllun. Fyr­ir­vara­laust dóm­þing var sam­þykkt af sýslu­manni að kröfu Glitnis með til­vísun um að Stundin hefði ann­ars verið í aðstöðu til að birta meiri upp­lýs­ingar upp úr hinum meintu gögnum.

Stundin hafði þá fjallað um að við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra með bréf tengd Glitni, sem og lána­mál hans hjá bank­anum og boðs­ferðir, hefðu verið með öðrum hætti en hann hafði sjálfur lýst. Þannig hafði hann til dæmis losnað undan per­sónu­legri ábyrgð á 50 millj­óna króna kúlu­láni, þegar það var flutt yfir á einka­hluta­fé­lag í eigu föður hans skömmu fyrir hrun, en félag­inu var slitið eftir efna­hags­hrunið þegar skuldir þess höfðu rokið upp úr öllu valdi. Auk þess fór Bjarni í fleiri boðs­ferðir í boði bank­ans en hann hafði greint frá áður, hafði átt 165 millj­ónir króna í pen­inga­mark­aðs­sjóði Glitnis, sem stang­að­ist á við fyrri yfir­lýs­ingar, og seldi öll bréf sín í sjóðnum dag­ana fyrir banka­hrunið. Þá fund­aði hann með banka­stjóra Glitnis um vanda bank­ans, sem kjör­inn full­trúi, tveimur dögum áður en hann hóf að selja per­sónu­leg hluta­bréf sín í bank­anum fyrir rúm­lega 120 millj­ónir króna.

Glitnir krafð­ist þess að Stundin eyddi öllum fréttum sem skrif­aðar hefðu verið um málið af inter­net­inu og afhenti til­tekin gögn. Lögmaður þrota­bús­ins féll hins vegar frá fyrri kröf­unni og var síð­ari kröf­unni hafnað, á grund­velli þess að ómögu­legt væri að afhenda gögn sem gætu verið til raf­rænt.

Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík sendi frá sér yfir­lýs­ingu þess efnis að með lög­bann­inu væri verið að „frysta til­tekið ástand“, en þrotabú Glitnis hafði lýst áhyggjum af því að upp­lýs­ingar um fjár­mál þús­unda Íslend­inga væri að finna í gögnum sem Stundin hefði undir höndum.

Stundin vildi flýta málinu

Sýslu­mað­ur­inn í Reykja­vík féllst ekki á þá vörn Stund­ar­innar í skyndi­legu dóm­þingi á skrif­stofu mið­ils­ins að umfjöll­unin ætti erindi til almenn­ings, hefði þýð­ingu í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi og nyti verndar stjórn­ar­bund­ins tján­ing­ar­frelsis.

Stundin fór fram á að mál­inu yrði flýtt eins og auðið yrði fyrir hér­aðs­dómi. Beiðni Stund­ar­innar um flýti­með­ferð var ekki form­leg í skiln­ingi einka­mála­laga, þar sem ein­ungis stefn­andi máls getur óskað eftir flýti­með­ferð form­lega. Hins vegar taldi dóm­ari að dag­setn­ingin sam­ræmd­ist tímara­mma flýti­með­ferða­mála.

Bæði Kjarninn og Rík­is­út­varpið hafa fjallað um upp­lýs­ingar um við­skipti innan Glitnis fyrir hrunið á und­an­förnum vikum. Viðbrögð lög­manns þrota­bús Glitnis hafa verið að biðja Kjarnann að upp­lýsa um hvort frek­ari umfjöllun væri fyr­ir­huguð úr gögn­unum. Fyr­ir­vara­laus koma á skrif­stofur Kjarnans átti sér því ekki stað, líkt og í til­felli Stund­ar­innar.

Frá því að Glitnir fékk sam­þykkt lög­bann á umfjöllun Stund­ar­innar og Reykja­vík Media hefur verið greint frá því, upp úr gögnum frá bank­anum, að hópur stjórn­enda og starfs­manna Glitnis hafði stundað umfangs­mikil við­skipti með bréf tengd bank­anum eftir að hafa fengið þá vit­neskju að stjórn­ar­for­maður Glitnis hefði hitt seðla­banka­stjóra og sóst eftir fyr­ir­greiðslu Seðla­banka Íslands vegna þess að bank­inn væri fyr­ir­sjá­an­lega ógjald­fær.

Leki á gögnum úr Glitni er til rann­sóknar hjá Hér­aðs­sak­sókn­ara­emb­ætt­inu, sem áður hét Sér­stakur sak­sókn­ari. Rit­stjórar Stund­ar­innar fóru til skýrslu­töku hjá emb­ætt­inu á mánu­dag og verða sam­tals tólf blaða- og frétta­menn boð­aðir til skýrslu­töku hjá emb­ætt­inu vegna máls­ins sam­kvæmt frétt Rík­is­út­varps­ins.

Fyr­ir­vari vegna hags­muna: Í frétt­inni fjallar Stundin um dóms­mál sem varðar Stundina beint og Stundin er aðili að.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár