„Goodbye my friend its hard to die“

„Goodbye my friend its hard to die“

Mikael Torfason er ein­stak­lega ein­lægur, sumir kynnu að segja mis­kunn­ar­laus, í frá­sögnum sínum af fjöl­skyldu­málum. Synda­fallið er bók af svip­uðum toga og Týnd í para­dís sem kom út fyrir tveimur árum. Umfjöll­un­ar­efnið er sem fyrr fjöl­skylda höf­undar og vensla­fólki. Og það er ekk­ert dregið undan. Mikael tekur fyrir öll tabúin. Þarna er fram­hjá­hald, geð­veiki, sjálfs­vígstil­raun, drykkju­skapur og trú­ar­of­stæki.  

Að þessu sinni eru for­eldrar Mikaels undir smá­sjánni. Þau skildu með þrjú börn þegar Mikael var á barns­aldri. Mikael og bróðir hans voru hjá föður sínum, Torfa Geir­munds­syni rak­ara, en systir þeirra fylgdi móður sinni, Huldu Fríðu Berndsen.

Nýríkur Torfi

Skiln­að­ur­inn varð í fram­haldi af fram­hjá­haldi eig­in­manns­ins sem marg­sinnis var konu sinni ótrúr, meira að segja með mág­konu sinni. Hulda Fríða glímdi við miklar raunir í fram­haldi af skiln­að­inum. Geðræn veik­indi herj­uðu á hana með til­heyr­andi upp­á­komum sem börnin fylgd­ust á stundum með. Og Torfi rak­ari kvænt­ist aftur og varð nýríkur og fór með him­in­skautum. Pen­ing­arnir mok­uð­ust inn og hár­stofa hans var í tísku. Hann var í sviðs­ljós­inu og lifði hátt. Hulda Fríða barð­ist aftur á móti áfram í líf­inu sem blá­fá­tæk, ein­stæð móðir í Breið­holti. Mikael teiknar upp þann gríð­ar­lega mun sem var á kjörum hjón­anna fyrr­ver­andi og þar með barn­anna þriggja sem sveifl­uð­ust á milli allsnægta og fátæktar.

Hlý og mis­kunn­ar­lausSynda­fallið tekur á við­kvæmum fjöl­skyldu­málum höf­undar.

Óborg­an­leg frá­sögn er af því þegar enskir hommar, vinir Torfa, komu í heim­sókn til hans um jól. Gest­irnir komu fær­andi hendi og allir fengu ein­hvers konar typpa­dót í jóla­gjöf. Þetta voru ein skemmti­leg­ustu jól höf­undar.

Bókin er mestan part saga for­eldra Mikaels og þess ferða­lags lífs­ins sem fylgdi aðskiln­að­inum. Mikael hafði sum­ar­dvöl á nokkrum sveita­bæjum. Sumir kann­ast við þær frá­sagnir úr útvarps­þáttum sem hann gerði og fluttir voru í Rík­is­út­varp­inu. Mikael er þekktur fyrir að vera hörku­dug­legur. Hann sam­ein­aði þarna afrakstur ferða sinnna um sveitir lands­ins í útvarp og á bók. Frá­sögnin er í senn ljúf og áreynslu­lítil. Mis­kunn­ar­laus en mild. Bókin er þar af leið­andi fal­leg þótt fjallað sé um svo erfið mál sem geð­veiki, alkó­hól­isma, ótryggð og trú­ar­of­stæki.

Dauðastríð

Og svo er það dauða­stríð föður hans sem lifði hátt en end­aði sem útbrunn­inn alkó­hólisti. Síðustu árin bjó hann í glugga­lausri kjall­ara­holu undir rak­ara­stofu sinni. Hann hafði hætt að drekka um ára­bil en féll svo og drakk þar eftir í laumi. Á þessu ári greind­ist hann með skorpulifur. Þá komst upp að hann hafði leynt drykkj­unni fyrir aðstand­endum sínum. Mikael og systk­ini hans gerðu allt til þess að hann fengi nýja lifur. Torfi var fluttur til Sví­þjóðar í von um bata. Á end­anum var því hafnað að hann fengi ígrædda lifur.

„Við verðum að fá nýja lifur, pabbi. Þú mátt ekki deyja,“ segir Mikael við sjúkra­beð föður síns. Eins konar upp­gjör föður og sonar átti sér stað. En kímnin var aldrei langt undan. Fár­veikur raular Torfi lag­línu: „Goodbye my fri­end its hard to die.“ Og Mikael nær í lagið á Spotify í far­síma sínum og spilar fyrir dauð­veikan föður sinn.

Torfi fékk ekki lifur af því hann hafði ekki verið edrú í sex mán­uði. Hann var fluttur aftur heim til Íslands en mátti hugs­an­lega koma aftur eftir hálft ár. Öllum mátti vera ljóst að hann gæti ekki lifað þann tíma.

„Helvítis Svíarnir drápu mig,“ sagði Torfi við son sinn. Nokkrum dögum síðar var hann allur. Hann dó úr alkó­hól­isma.

Fegurð og sársauki

Kápu bók­ar­innar gerði mynd­list­ar­mað­ur­inn Jón Óskar, frændi Mikaels. Kápan er í svip­uðum dúr og á síð­ustu bók höf­undar, ein­stak­lega vel heppnuð. Bókin er afar fal­leg og manni þykir ósjálfrátt vænt um hana. Og efnið svíkur svo sann­ar­lega ekki. Þrátt fyrir allan sárs­auk­ann og nær­göngular lýs­ingar á fólki í neyð and­lega og lík­am­lega, stendur feg­urðin þó eftir. Allt þetta vand­með­farna efni er sett fram af still­ingu, kímni og hlýju.

„Þrátt fyrir allan sárs­auk­ann og nær­göngular lýs­ingar á fólki í neyð and­lega og lík­am­lega, stendur feg­urðin þó eftir.“

Eftir lest­ur­inn er sem maður hafi gjör­þekkt Torfa og Huldu. Og það er hægt að draga af lestr­inum mik­inn lær­dóm, ekki síst hvað varðar alkó­hól­is­mann sem mis­kunn­ar­laust drepur fólk með hræði­legum hætti. Þetta er í senn holl og skemmti­leg lesn­ing sem á erindi við hvern mann. Les­and­inn hlær og grætur á víxl. Synda­fallið er höf­undi sínum til sóma og fær fimm stjörnur. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Bókadómar

Sagan um Rúnu
GagnrýniBókadómar

Sagan um Rúnu

Rúna, örlaga­saga, er snotur bók um sveita­stúlku norðan úr Húna­vatns­sýslu sem náði miklum árangri á heims­mæli­kvarða við að temja hross og keppa til glæstra sigra. Sjálfur Orri frá Þúfu, verð­mæt­asti stóð­hestur Íslands, er eitt þeirra hrossa sem Rúna, eða Guðrún Ein­ars­dóttir,  upp­götv­aði. Upphaf sög­unnar er á Mosfelli fyrir norðan þar sem Rúna elst upp í faðmi stór­fjöl­skyld­unnar. Þar kynnt­ist hún...
Einstök saga Önnu
GagnrýniBókadómar

Einstök saga Önnu

Trans­konan Anna Krist­jáns­dóttir varð annar ein­stak­ling­ur­inn á Íslandi til að brjót­ast út úr lík­ama sínum sem karl og verða kona. Anna fædd­ist sem drengur og fékk nafnið Kristján. Snemma upp­götv­aði dreng­ur­inn að hann væri í raun­inni stúlka. Hann hafði yndi af því að klæð­ast fatn­aði sem stúlka. Guðríður Har­alds­dóttir blaða­maður skráði sögu Önnu í bók­inni, Anna, eins og ég er....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár