Bjarni fór í fjórar boðsferðir en sagðist hafa farið í tvær

Bjarni Bene­dikts­son sagð­ist aðeins hafa farið í tvær boðs­ferðir á vegum bank­anna þegar hann var spurður árið 2009. Bjarni, sem var þing­maður á þeim tíma, var hins vegar skráður í fimm boðs­ferðir sam­kvæmt gögnum sem Stundin hefur undir höndum og fór að minnsta kosti í fjórar þeirra. Hann er einn þriggja stjórn­mála­manna sem rann­sókn­ar­skýrsla Alþingis greinir frá að hafi farið í boðs­ferðir.

Bjarni fór í fjórar boðsferðir en sagðist hafa farið í tvær

Bjarni Bene­dikts­son var skráður í fimm boðs­ferðir út fyrir land­stein­ana á vegum Glitnis og Íslands­banka á árunum 2006 til 2008 og var jafn­framt boðið í veiði­ferð að Langá á Mýrum. Einungis er fjallað um eina boðs­ferð Bjarna í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um banka­hrunið og sjálfur hefur hann sagst aðeins tví­vegis hafa þegið slík boð. Gögn og tölvu­póst­sam­skipti sem Stundin hefur undir höndum benda þó til þess að skiptin hafi verið fleiri. Þau varpa ljósi á þá miklu vel­vild sem Bjarni, þá þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og áhrifa­maður í íslenskum stjórn­málum, naut hjá Glitn­is­mönnum á útrás­ar­ár­unum.

Í einkaþotu með Glitnismönnum 

Að því er fram kemur í sið­ferð­is­hluta rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis um banka­hrunið var fremur sjald­gæft að íslenskir stjórn­mála­menn færu í boðs­ferðir á vegum bank­anna á árunum fyrir hrun. Er ein­vörð­ungu minnst á þrjá stjórn­mála­menn í skýrsl­unni sem þáðu slíkar boðs­ferðir: borg­ar­full­trú­ana Björn Inga Hrafns­son og Gísla Martein Bald­urs­son og þing­mann­inn Bjarna Bene­dikts­son.

Greint er frá því að Bjarni hafi ferð­ast í einka­þotu með Glitn­is­mönnum til Skotlands dag­ana 20. til 22. sept­em­ber 2007. Með í för voru þrír yfir­menn hjá Glitni; þeir Einar Örn Ólafsson, Guð­mundur Hjalta­son og Helgi Eiríks­son, Hermann Guð­munds­son, þáver­andi for­stjóri N1, Hjör­leifur Jak­obs­son, for­stjóri Kjalar, og Gunnar Þor­láks­son og Gylfi Héð­ins­son, eig­endur BYGG. Bjarni Bene­dikts­son var á þessum tíma stjórn­ar­for­maður N1, en faðir Bjarna og föð­ur­bróðir voru stórir hlut­hafar í Glitni í gegnum eign­ar­halds­fé­lagið Þátt International.

„Við erum að fara á völlinn“

Bjarni Bene­dikts­son sagði í við­tali við Frétta­blaðið í apríl 2010 að honum hefði marg­sinnis verið boðið í boðs­ferðir en aðeins tví­vegis þegið slík boð. Um boðs­ferð­irnar sagði hann í við­tali við Við­skipta­blaðið nokkrum vikum síðar: „Í skýrsl­unni er nefnd boðs­ferð frá árinu 2007 með Glitni. Þá ferð og aðra slíka á árinu 2006 fór ég sem stjórn­ar­for­maður N1.“ Þá sagði hann í Kast­ljósi: „Það rigndu til mín boð um að koma í ýmiss konar ferðir af þessum toga. Almennt hafn­aði ég slíkum boðum. Ég þáði eina slíka ferð árið 2006 og aðra árið 2007.“

Seinni boðs­ferðin sem Bjarni vísar til er ferð til London á vegum Íslands­banka dag­ana 20. febr­úar til 24. febr­úar 2006. Farið var á fót­bolta­leik Chelsea og Barcelona, en Bjarni var ferða­fé­lagi Einars Arnar Ólafs­sonar, vinar síns hjá Glitni, ásamt Hermanni Guð­munds­syni, for­stjóra N1. „Við erum að fara á völl­inn eins og svo margir, en höfum reyndar annað erindi líka,“ segir í tölvu­pósti Einars Arnar til tveggja ann­arra starfs­manna bank­ans.

„Sælir, eigum við ekki að
gefa gestum okkar gjöf?“

Tölvu­póst­sam­skipti milli starfs­manna Glitnis vegna þess­arar ferðar gefa athygl­is­verða inn­sýn í góð­ær­is­stemn­ing­una sem var alls­ríkj­andi í bönk­unum á þessum tíma. 

„Sælir, eigum við ekki að gefa gestum okkar gjöf eftir kynn­ing­una á LON skrif­stof­unni??“ segir í einum póst­inum. „Eigum við að hafa þetta eitt­hvað grand og flott, eða létt og fyndið? Getum einnig sent eft­ir­fylgn­is­gjöf, þ.e. dag­inn eftir að menn koma heim að senda þeim eitt­hvað, "Takk fyrir sam­ver­una" gjöf... Smá input, ple­ase.“

ÚtrásinMynd teng­ist frétt ekki beint

Síðar á árinu 2006 er Bjarni til­greindur sem einn af boðs­gestum Glitnis til Sjanghæ vegna opn­unar skrif­stofu bank­ans þar í landi.

„Ég tel að við eigum ein­göngu að bjóða þeim sem ein­hverjar líkur eru á að fari í business í Kína þannig að þetta verði spurn­ing um gæði ekki magn,“ segir í tölvu­pósti Magnúsar Bjarna­sonar, sem þá var yfir­maður alþjóða­sviðs Glitnis, til Bjarna Ármanns­sonar. „Dag­skráin þarf að vera mjög miðuð við þarfir hvers gests, t.d. skipu­leggjum við heim­sókn fyrir Jón Ásgeir og Skarp­héð­inn í kín­verskt retail fyr­ir­tæki, á meðan Icelandair færi í heim­sókn til China Eastern o.s.frv. Við myndum taka með fjöl­miðla frá Íslandi með okkur gerum mikið úr opnun á fyrsta áfanga hita­veitu í Xianyang og síðan opnun á skrif­stof­unni í Shanghai.“

Ekki er hægt að full­yrða, út frá þeim upp­lýs­ingum sem fram koma í gögn­unum að Bjarni hafi á end­anum farið í ferð­ina. 

Uppfært kl. 12:30:

Stundin hefur nú rætt við fólk sem fór í ferð­ina og full­yrðir að Bjarni Bene­dikts­son hafi farið til Sjanghæ og verið meðal ann­ars við­staddur hátíð­ar­höld á vegum Glitnis við Pudong Shangri-La hót­elið. Bjarni hefur ekki svarað tölvu­pósti Stund­ar­innar þar sem hann er spurður um umrædda ferð. Hér má sjá skjá­skot af boðskorti Glitnis á opnun skrif­stof­unnar í Sjanghæ:

Flogið í rússneskri herþyrlu

Enn ein boðs­ferðin sem Bjarna var boðið í var lax­veiði­ferð til Rúss­lands sum­arið 2007. „Viltu ítreka list­ann við sendi­ráðið? Þeir sem eru á mínum vegum eru Einar Sveins­son, Benedikt Ein­ars­son, Bjarni Bene­dikts­son, Haukur Oddsson, Guð­mundur Ásgeirs­son (hann er búinn að fá sitt VISA) og ég Bjarni Mark­ús­son,“ segir í tölvu­pósti sem Bjarni Mark­ús­son sendi starfs­mönnum Glitnis þann 9. júlí. 

Tugum við­skipta­vina og starfs­manna Glitnis var boðið í veiði­ferðir í Ponoi-lax­veiði­ána á Kóla-skaga í Rúss­landi þetta sumar, en farið var í nokkrum hollum og hver ferð þriggja daga löng. DV fjall­aði um ferð­irnar árið 2009 og greindi frá því að flogið hefði verið frá Reykja­vík­ur­flug­velli og á flug­völl í borg­inni Murmansk á Kóla-skaga í Norður-Rúss­landi. Þaðan hafi verið farið að ánni í rúss­neskri her­þyrlu og gist í útbúnum upp­hit­uðum tjald­búðum. Má ætla að kostn­aður við ferð­irnar hafi hlaupið á tugum millj­óna, en um er að ræða eina gjöf­ul­ustu lax­veiðiá í heimi.

Gert var ráð fyrir Bjarna Bene­dikts­syni á lista sem afhentur var rúss­neska sendi­ráð­inu 9. júlí 2007. Samkvæmt skjali sem Stundin hefur undir höndum var Bjarni skráður í ferð til Rúss­lands 17. til 21. júlí, gaf upp vega­bréfa­upp­lýs­ingar og var ekki í hópi þeirra sem afboð­uðu sig. 

Í sama skjali er að finna upp­lýs­ingar um veiði­ferð að Langá dag­ana 5. og 6. júlí 2007. Þar er Bjarni Bene­dikts­son á gesta­lista með Jóni Ásgeiri Jóhann­essyni, Hannesi Smára­syni, Finni Ing­ólfs­syni og fleirum, auk Glitn­is­manna, meðal ann­ars Lárusar Welding, Guð­mundar Hjalta­sonar og Einars Arnar Ólafs­sonar. 

Með Ólafi Ragnari og George Soros

Bjarni þáði svo boð Glitnis til New York þann 4. sept­em­ber 2007. „Þið kannski sendið á okkur Bjarna Ben. stað­fest­ingu með flug og hótel þegar það er til­búið,“ segir í tölvu­pósti Bjarna Mark­ús­sonar, sem sinnti eigna­stýr­ingu fyrir Bjarna í Glitni, til starfs­manns í bank­anum dag­inn fyrir ferð­ina. Starfs­mað­ur­inn stað­festi svo að búið væri að bóka flug fyrir Bjarna til New York á við­skiptaf­ar­rými. 

Tilefni ferð­ar­innar var opnun úti­bús Glitnis í New York og þátt­taka í orku­ráð­stefnu. Ólafur Ragnar Grímsson, þá for­seti Íslands, var með í för og George Soros, einn þekkt­asti fjár­festir heims, var heið­urs­gestur.

Ekkert var til sparað; gist á fimm stjörnu hót­eli og vel veitt í mat og drykk auk þess sem heims­þekktur djass­tón­list­ar­maður, Winton Marsalis, lék fyrir veislu­gesti. DV fjall­aði ítar­lega um ferð­ina árið 2011 og hafði eftir Bjarna Bene­dikts­syni að honum hefði verið boðið í ferð­ina sem við­skipta­manni Glitnis.

Ferð á Coldplay-tónleika skipulögð í miðju hruni

Athygli vekur að þann 30. sept­em­ber 2008, dag­inn eftir að til­kynnt var að íslenska ríkið myndi eign­ast 75 pró­senta hlut í Glitni, voru starfs­menn bank­ans að skipu­leggja boðs­ferð til London á Coldplay-tón­leika þann 15. des­em­ber.

„Best að negla þetta,“ segir í tölvu­pósti starfs­manns sem spyr hverjir fari á tón­leik­ana og fær þau svör frá kollega sínum að „Bjarni Ben og Þóra konan hans“ ætli með.

Bjarni sat fund efna­hags- og skatta­nefndar að morgni dags 15. des­em­ber en tók ekki til máls á þing­fundi síðar um dag­inn. Engin atkvæða­greiðsla fór fram, svo ómögu­legt er að full­yrða hvort hann hafi verið á land­inu. Afar ólík­legt verður þó að telj­ast að Bjarni hafi farið á Coldplay-tón­leika á vegum banka í miðjum fjár­lagaum­ræðum rétt eftir hrun þegar stór og brýn mál voru til umfjöll­unar á Alþingi. 

Bankarnir héldu illa utan um gögnin

Þessi frétt er hluti af ítar­legri umfjöllun Stund­ar­innar um við­skipti Bjarna Bene­dikts­sonar og fjöl­skyldu hans fyrir hrun og sam­band hans við Glitni. Stundin gerði árang­urs­lausar til­raunir í síð­ustu viku til að ná við­tali við Bjarna um málin í gegnum aðstoð­ar­mann hans, Svan­hildi Hólm Vals­dóttur. Í gær­morgun sendi svo Stundin Bjarna Bene­dikts­syni og Svan­hildi sér­staka fyr­ir­spurn um boðs­ferð­irnar sem hér hefur verið greint frá. Ekkert svar hefur borist þegar þetta er ritað.

Við vinnslu sið­ferð­is­hluta rann­sókn­ar­skýrslu Alþingis um banka­hrunið var kallað eftir gögnum um risnu og boðs­ferðir og skoðað sér­stak­lega hvort stjórn­mála­menn kæmu þar fyrir. Fram kemur að gögn hafi borist seint frá Glitni og verið verr flokkuð en hjá hinum bönk­unum.

„Setja verður þann fyr­ir­vara að bank­arnir hafi haldið illa utan um þau gögn sem vörð­uðu alls kyns risnu og boðs­ferðir. Ekki er úti­lokað að kostn­aður af þessu tagi hafi verið færður á dótt­ur­fé­lög bank­anna í útlöndum,“ segir í skýrsl­unni. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Engeyingum bjargað

Seldi í Sjóði 9 sama dag og neyðarlögin voru sett
Rannsókn

Seldi í Sjóði 9 sama dag og neyð­ar­lögin voru sett

Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi þing­maður og núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, seldi allar eignir sínar í Sjóði 9 hjá Glitni dag­ana 2. til 6. októ­ber árið 2008. Þann 6. októ­ber miðl­aði hann upp­lýs­ingum um störf FME til fram­kvæmda­stjóra hjá Glitni. Ný gögn varpa ljósi á hluta­bréfa­sölu Bjarna í Glitni í febr­úar 2008 en hann fund­aði með banka­stjóra Glitnis tveimur dögum áður en hann byrj­aði að selja bréfin.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár