Bjarni fundar um endalokin

Þingmenn Sjálf­stæð­is­flokks­ins funda nú í Valhöll. Björt fram­tíð til­kynnti um slit á stjórn­ar­sam­starf­inu vegna trún­að­ar­brests sem teng­ist máli dæmds kyn­ferð­is­brota­manns. Faðir for­sæt­is­ráð­herra veitti Hjalta með­mæli en stjórn­völd héldu því leyndu.

Bjarni fundar um endalokin

Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra fundar nú með þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins í Valhöll, en ljóst er að líf fyrstu rík­is­stjórnar hans er á enda.

Björt fram­tíð til­kynnti um slit á stjórn­ar­sam­starf­inu við Sjálf­stæð­is­flokk­inn og Viðreisn í gær­kvöldi. 

Stutt­orðurBjarni sagði fáein orð við fjöl­miðla­menn áður en hann gekk inn á fund­inn.

Ástæðan sem Björt fram­tíð gefur er trún­að­ar­brestur í máli Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, manns sem dæmdur var árið 2004 fyrir að brjóta gegn stjúp­dóttur sinni nær dag­lega í tólf ár. Faðir for­sæt­is­ráð­herra veitti Hjalta með­mæli þegar hann sótti um og fékk upp­reist æru, en því var haldið leyndu fyrir almenn­ingi, Alþingi og sam­starfs­flokkum sjálf­stæð­is­manna í rík­is­stjórn. Virð­reisn hefur kallað eftir því að boðað verði sem fyrst til kosn­inga, en Benedikt Jóhann­es­son for­maður flokks­ins hafnar því hins vegar að trún­að­ar­brestur hafi orðið.

„Það er margt sem mig langar til að tala um, það eru þessi tíð­indi vik­unnar og sú staða sem síðan mynd­ast í kjöl­farið,“ sagði Bjarni við fjöl­miðla áður en hann gekk inn í Valhöll á fund þing­flokks­ins áðan. Hann hyggst veita við­töl síðar í dag.

„Það er margt sem mig langar að tala um“

Fram kom í við­tali RÚV og Stöðvar 2 við Guðlaug Þór Þórð­ar­son utan­rík­is­ráð­herra að hann ætti ekki von á því að breyt­ing yrði á stuðn­ingi við Bjarna Bene­dikts­son sem for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

„Það er mjög skilj­an­legt að fólki sé brugðið og fyllist óhugn­aði í tengslum við þessi mál,“ sagði Guð­laugur. „Bjarni hefur haft stuðn­ing Sjálf­stæð­is­manna og ég ekki von á því að það verði ein­hvern breyt­ing á því. 

Þing­flokk­ur­inn fundar nú um næstu skref eftir að Björt fram­tíð til­kynnti um stjórn­ar­slit.

Hjalti Sigurjón Hauksson var dæmdur í fimm og hálfs árs fang­elsi árið 2004 fyrir að hafa brotið gegn stjúp­dóttur sinni nær dag­lega í tólf ár. Stundin greindi frá því þann 25. ágúst síð­ast­lið­inn að Hjalti hefði fengið upp­reist æru, og í gær var stað­fest að Benedikt Sveins­son, faðir Bjarna Bene­dikts­sonar for­sæt­is­ráð­herra, væri einn þeirra sem veitt hefðu Hjalta með­mæli vegna umsóknar hans.

Dóms­mála­ráðu­neytið og þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins hafa beitt sér af mik­illi hörku fyrir því að leynd ríki um nöfn umsækj­enda um upp­reist æru, með­mæl­enda þeirra og máls­með­ferð dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins.

Þetta var gert undir þeim for­merkjum að um við­kvæmar per­sónu­upp­lýs­ingar væri að ræða sem ættu lögum sam­kvæmt að fara leynt. Engu að síður við­ur­kenndi dóms­mála­ráð­herra, Sigríður Andersen, í gær­kvöldi að hafa greint Bjarna Bene­dikts­syni frá því í sumar að faðir hans hefði veitt Hjalta Sig­ur­jóni með­mæli. Svo virð­ist sem þetta hafi verið drop­inn sem fyllti mæl­inn hjá Bjartri fram­tíð. 

Sigríður Á. Andersendóms­mála­ráð­herra kaus að birta ekki upp­lýs­ingar um mál manna sem fengið hafa upp­reist æru.
Kristján Þór Júl­í­us­sonmennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra
Unnur Brá Kon­ráðs­dóttirfor­seti Alþingis

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár