Tónleikahaldari Sigur Rósar fékk 35 milljónir fyrirfram en kemur ekki að tónlistarhátíðinni

Tón­leika­hald­ar­inn Kári Sturlu­son fékk 35 millj­ónir króna greiddar fyr­ir­fram frá Hörpu vegna tón­leika Sigur Rósar sem haldnir verða í des­em­ber. Kári kemur ekki að tón­list­ar­há­tíð Sigur Rósar.

Tónleikahaldari Sigur Rósar fékk 35 milljónir fyrirfram en kemur ekki að tónlistarhátíðinni
Harpa Halla­rekstur eykst um 130 millj­ónir króna á milli ára. Mynd: Harpa.is

For­stjóri Hörpu vill ekki ræða fyr­ir­fram­greiðslu á 35 millj­ónum króna til tón­leika­hald­ar­ans Kára Sturlu­sonar vegna tón­leika Sigur Rósar í Hörpu í des­em­ber næst­kom­andi. Sjálfur vill hann ekki ræða málið. „Ég er bund­inn trún­aði úti um allt og ég ætla að virða það,“ segir hann.

Kára hefur verið greint frá því að hann verði ekki aðili að tón­list­ar­há­tíð­inni Norður og niður, sem boðuð er á vegum Sigur Rósar í des­em­ber næst­kom­andi, en engu að síður kveðst hann halda utan um tón­leika Sigur Rósar á hátíð­inni. Spurður hvort hann sé með sam­komu­lag við Sigur Rós um tón­leik­ana vill hann ekki tjá sig að öðru leyti en með yfir­lýs­ingu.

Í yfir­lýs­ing­unni segir Kári að tón­leikum Sigur Rósar á tón­list­ar­há­tíð Sigur Rósar í Hörpu beri ekki að rugla saman við tón­list­ar­há­tíð­ina sjálfa. Hann sé aðili að tón­leik­unum en ekki tón­list­ar­há­tíð­inni. „Fernum tón­leikum Sigur Rósar í Eldborg ber ekki að rugla saman við hátíð­ina ‘Norður og Niður’ sem á að fara fram sam­hliða tón­leik­unum en sem sjálf­stætt mengi í fram­kvæmd og sölu. Und­ir­rit­aður hóf það verk­efni með hljóm­sveit­inni en ekki náð­ist sátt um útfærsl­una á því og því var annar aðili feng­inn að því verk­efni sem slíku. [...] Und­ir­rit­aður er ann­ars vegar með sam­komu­lag við hljóm­sveit­ina um tón­leik­ana og hins­vegar sam­komu­lag við Hörpu um leigu á hús­næði, tækjum, miða­sölu og mann­skap vegna tón­leik­anna.“

Kári vill ekki tjá sig nánar um málið. „Þetta er nú ekk­ert flókið, svo sem.“

Sigur Rós hefur hins vegar kynnt tón­list­ar­há­tíð sína og svo tón­leika sína í Hörpu sam­hliða. 

Georg Holm, bassa­leik­ari Sigur Rósar, segir að hljóm­sveitin muni ekki tjá sig um málið að svo stöddu. „Þetta er mál í vinnslu,“ segir hann. 

Sigur RósHeldur tón­list­ar­há­tíð 27. til 30. des­em­ber næst­kom­andi í Hörpu.

Forstjóri Hörpu tjáir sig ekki um viðskiptin

Samkvæmt heim­ildum Stund­ar­innar tók Kári við um 35 millj­óna króna fyr­ir­fram­greiðslu af miða­sölu vegna tón­leik­anna án þess að Sigur Rós kæmi að því. Ákvörð­unin hafi verið tekin af Svan­hildi Kon­ráðs­dóttur, for­stjóra Hörpu. Hún neit­aði í sam­tali við Stundina að tjá sig um málið eða almenna við­skipta­hætti Hörpu í tengslum við miða­sölu á grund­velli þess að um væri að ræða trún­að­ar­mál. 

Svan­hildur Kon­ráðs­dóttirVill ekki tjá sig um hvort hún hafi tekið ákvörðun um að greiða tón­leika­hald­ara 35 millj­ónir króna fyr­ir­fram.

„Ef þú kæmir hérna og héldir ferm­ing­ar­veislu eða afmælið þitt eða hvað það væri, myndir þú ekki vilja að starfs­menn húss­ins væru eitt­hvað að tjá sig um það. Það er trún­að­ar­mál á milli þeirra sem eiga hérna við­skipti.“

For­stjóri Hörpu vill ekki svara almennri spurn­ingu um hvort það tíðk­ist að Harpa borgi tón­leika­höld­urum fyr­ir­fram. 

Þú vilt ekki svara því hvort þið almennt borgið stundum tón­leika­höld­urum fyr­ir­fram?

„Nei, þetta er bara partur af við­skiptum sem við eigum við þessa aðila.“

Svan­hildur bendir á að Harpa geri samn­inga við tón­leika­hald­ara, sem séu síðan sjálfir að fullu ábyrgir fyrir við­burð­inum. 

Hún seg­ist ekki hafa átt neina aðkomu að mál­inu per­sónu­lega.

Harpa tapaði 670 milljónum króna

Þórður Sverr­is­son, nýkjör­inn stjórn­ar­for­maður Hörpu, seg­ist ekki þekkja málið að öðru leyti en sem kemur fram í fjöl­miðum. Málið sé á for­ræði for­stjóra Hörpu. Stjórn Hörpu hefur enn ekki fundað í fyrsta sinn eftir að hún var kjörin á aðal­fundi á mánu­dag. 

Á aðal­fund­inum kom fram að kostn­aður við rekstur Hörpu hafi auk­ist tölu­vert umfram tekjur og því sé vax­andi tap. 670 millj­óna króna tap var af rekstri Hörpu í fyrra. Harpa er í opin­berri eigu. Íslenska ríkið á 54 pró­sent en Reykja­vík­ur­borg 46 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Búa við nýtt vindorkuver: „Við náttúrlega venjumst öllu“
4
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár