Áslaug Karen tilnefnd til verðlauna fyrir umfjöllun um loftslagsmál

Umhverfis- og auð­linda­ráðu­neytið veitir verð­laun á degi íslenskrar nátt­uru. Blaða­kona Stund­ar­innar er til­nefnd fyrir að hafa „fjallað á vand­aðan og eft­ir­tekt­ar­verðan hátt um stöðu Íslend­inga í lofts­lags­málum“.

Áslaug Karen tilnefnd til verðlauna fyrir umfjöllun um loftslagsmál

Áslaug Karen Jóhanns­dóttir, blaða­kona Stund­ar­innar, er til­nefnd til fjöl­miðla­verð­launa umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins fyrir frétta­skýr­ingar sínar um lofts­lags­mál sem birt­ust í blað­inu í vor og snemma sum­ars.

Verð­launin verða veitt þann 15. sept­em­ber í tengslum við Dag íslenskrar nátt­úru, en dóm­nefnd til­nefndi fjóra til verð­laun­anna á föstu­dag.

Auk Áslaugar eru til­nefnd þau Bergljót Bald­urs­dóttir, Sunna Val­gerð­ar­dóttir og Arn­hildur Hálf­dán­ar­dóttir, frétta­menn á RÚV, Ævar Þór Bene­dikts­son, oft­ast kall­aður Ævar vís­inda­maður, og Birgir Þór Harð­ar­son, blaða­maður á Kjarn­anum. 

Í rök­stuðn­ingi dóm­nefndar kemur fram að Áslaug Karen hafi fjallað á vand­aðan og eft­ir­tekt­ar­verðan hátt um stöðu Íslend­inga í lofts­lags­málum.

„Í grein­unum rýnir Áslaug m.a. í póli­tíska stefnu núver­andi og fyrr­ver­andi stjórn­valda í mála­flokknum og fjallar ítar­lega um helstu meng­un­ar­valda og leiðir til að draga úr vægi þeirra.“

Rök­stuðn­ing dóm­nefndar í heild má lesa hér að neðan:

Áslaug Karen Jóhanns­dóttir er til­nefnd fyrir frétta­skýr­ingar um lofts­lags­mál í Stund­inni, apríl – júní 2017. Áslaug Karen fjall­aði á vand­aðan og eft­ir­tekt­ar­verðan hátt um stöðu Íslend­inga í lofts­lags­málum. Í grein­unum rýnir Áslaug m.a. í póli­tíska stefnu núver­andi og fyrr­ver­andi stjórn­valda í mála­flokknum og fjallar ítar­lega um helstu meng­un­ar­valda og leiðir til að draga úr vægi þeirra.

Bergljót Bald­urs­dóttir, Sunna Val­gerð­ar­dóttir og Arn­hildur Hálf­dán­ar­dóttir eru til­nefndar fyrir frétta­skýr­ingar frétta­stofu RÚV um lofts­lags­mál, jan­úar – febr­úar 2017. Frétta­stofa RÚV hélt á lofti mark­vissri umfjöllun með vönd­uðum fréttum og frétta­skýr­ingum í umsjón þeirra Berg­ljótar, Sunnu og Arn­hildar um við­horf, breyt­ingar og afleið­ingar lofts­lags­breyt­inga með aðgengi­legri fram­setn­ingu fyrir áhorf­endur.

Birgir Þór Harð­ar­son er til­nefndur fyrir umfjöllun um lofts­lags­mál í Kjarn­anum, vet­ur­inn 2016 - 2017. Birgir hefur fjallað ötul­lega um lofts­lags­mál með umfjöllun um inn­lenda sem erlenda þróun lofts­lags­mála á síðum Kjarnans.

Ævar Þór Bene­dikts­son er til­nefndur fyrir fjöl­breytta umfjöllun um nátt­úru og umhverf­is­mál í þátt­unum Ævar vís­inda­maður á RÚV, jan­úar – mars 2017. Ævar fjall­aði á skemmti­legan, fjöl­breyttan og frum­legan hátt um mál­efni umhverfis og nátt­úru fyrir yngri kyn­slóð­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Loftslagsbreytingar

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár