Hlemmur end­ur­lífg­aður Með auknum ferða­manna­straumi til lands­ins hefur meira líf færst í mið­bæ­inn sem virð­ist um leið hafa stækkað. Nýlega tók Mat­höllin á Hlemmi til starfa, við góðar und­ir­tektir veg­far­enda. Þar er hægt að gæða sér á alls kyns góð­gæti en úrvalið er mikið og stemn­ingin góð. Mynd: Heiða Helgadóttir

Mathöll rís á Hlemmi

Ný mat­höll hefur opnað á Hlemmi, en þar er að finna tíu mat­sölu­staði sem bjóða upp á allt frá smur­brauði til græn­met­is­fæðu.

Í byrjun sept­em­ber voru opn­aðir síð­ustu tveir mat­sölu­stað­irnir í Hlemmi Mathöll, en þeir eru núna tíu sam­tals. Lengi vel hafa mat­gæð­ingar látið sig dreyma um að fá mat­höll í evr­ópskum stíl til lands­ins, eins og Tor­vehall­erne í Kaup­manna­höfn, en það var ekki fyrr en Reykja­vík­ur­borg aug­lýsti eftir til­lögum að nýt­ingu Hlemm-reits­ins sem að sá draumur varð að veru­leika. Rekstr­ar­að­ilar Mat­hall­ar­innar leigja hús­næðið og torgið af Reykja­vík­ur­borg.

Opnun Mat­hall­ar­innar hefur ítrekað taf­ist og segir fram­kvæmda­stjóri hennar, Ragnar Egilsson, að fólk hafi of oft verið of yfir­lýs­ing­arglatt og talið sig vera komna á síð­ustu metrana þegar enn var langt í land, en á end­anum hafi þetta tek­ist.

Hann segir for­sprakka hall­ar­innar hafa sífellt rek­ist á úreltar reglu­gerðir og þurft að sækja um fjöld­ann allan af leyfum. „Þetta er algjör­lega nýtt á íslenskum mark­aði, og það þurfti að breyta ýmsum reglum og við­miðum að okkar þörfum áður en við gátum opnað, en þetta …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár