Regína og börnin komin með dvalarleyfi: „Við erum svo hamingjusöm og þakklát“

Regína Osaruma­ese og börnin hennar þrjú, Daniel, Felix og Precious eru komin með dval­ar­leyfi hér á landi. Eugene, faðir barn­anna sem vísað var úr landi í sumar, hyggst sækja aftur um dval­ar­leyfi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar.

Regína og börnin komin með dvalarleyfi: „Við erum svo hamingjusöm og þakklát“
Komin með dval­ar­leyfi Hér er Regina ásamt sonum sínum, Daniel og Felix. Mynd: No Borders Iceland / Jórunn Edda Helgadóttir

Regína Osaruma­ese frá Nígeríu og börnin hennar þrjú, Daniel, Felix og Precious hafa fengið dval­ar­leyfi hér á landi. Kæru­nefnd útlend­inga­mála til­kynnti fjöl­skyld­unni þetta á mánu­dag. Nið­ur­staðan er afar óvenju­leg því það er ekki Regína sjálf sem fær dval­ar­leyfið heldur Felix, sonur hennar, sem fædd­ist hér á landi á meðan með­ferð máls­ins stóð yfir. Regína og hin börnin fá svo­kallað afleitt dval­ar­leyfi í kjöl­farið. Föður barn­anna, Eugene, var hins vegar vísað úr landi til Nígeríu í júní síð­ast­liðnum en hann hyggst nú sækja aftur um dval­ar­leyfi hér á landi á grund­velli fjöl­skyldu­sam­ein­ingar. 

„Ég vil fá að nota þetta tæki­færi til þess að þakka öllum þeim sem hafa veitt okkur stuðn­ing í gegnum árin,“ segir Regína í sam­tali við Stundina. „Við erum svo ham­ingju­söm og þakk­lát. Nú get ég loks­ins varpað önd­inni léttar,“ segir hún.

Næsta skref sé að fá Eugene, föður barn­anna, aftur til lands­ins en Regína segir það ekki hafa verið auð­velt verk­efni að hugsa ein um börnin síð­ustu mán­uði. 

Ekki fordæmisgefandi

Felix fékk dval­ar­leyfi á grund­velli ann­arar máls­greinar 74. greinar útlend­inga­laga en þar segir að heim­ilt sé að veita útlend­ingi sem sótt hefur um alþjóð­lega vernd og ekki fengið nið­ur­stöðu í máli sínu innan 18 mán­aða eftir að hann sótti fyrst um alþjóð­lega vernd dval­ar­leyfi á grund­velli mann­úð­ar­sjón­ar­miða. „Samkvæmt grein­inni er ófrá­víkj­an­legt skil­yrði að við­kom­andi hafi skil­ríki til þess að sanna á sér deili, en það hafði Regína ekki. En þar sem Felix fædd­ist hér á landi þá þótti sannað hver hann væri,“ segir Auður Tinna Aðal­bjarn­ar­dóttir, lög­maður fjöl­skyld­unnar, í sam­tali við Stundina. 

Hún segir ólík­legt að málið verði for­dæm­is­gef­andi fyrir fjöl­skyldur ann­arra barna sem einnig hafa fæðst hér á landi við með­ferð mála. „Þetta laga­á­kvæði sem barnið fékk dval­ar­leyfi á grund­velli er mjög sér­tækt. Þeirra mál byrj­aði áður en kæru­nefnd útlend­inga­mála tók til starfa og eftir að það gerð­ist hefur máls­með­ferð­ar­tím­inn styst mjög mikið í þessum málum. Þetta var extra löng máls­með­ferð og eins og þetta laga­á­kvæði er þá þarf átján mán­uði á þessum tveimur stjórn­sýslu­stigum til þess að þetta ákvæði gæti komið til skoð­unar. Þannig þetta er mjög sér­stök staða. Máls­með­ferð­ar­tím­inn hefur styst mjög mikið þannig það er ólík­legt að börn hæl­is­leit­enda sem fæð­ast á Íslandi falli þarna undir.“

Í umfjöllun Stund­ar­innar um stöðu barna sem koma hingað til lands í leit að alþjóð­legri vernd á síð­asta ári kom meðal ann­ars fram að Útlend­inga­stofnun hefur ekki litið svo á að börn séu aðilar í málum sem varðar líf þeirra og fram­tíð. Einungis sé horft í stöðu for­eldra þeirra. Börnin fylgja síðan for­eldr­unum í gegnum máls­með­ferð­ina, það er ef ekki er um fylgd­ar­laus börn að ræða. Auður segir mjög jákvætt að sjá í úrskurði kæru­nefnd­ar­innar að sér­stak­lega er fjallað um að Felix hafi við fæð­ingu öðl­ast stöðu aðila máls. „Þá er hann að fá sína eigin umfjöllun sem aðili, sem er mjög jákvætt með til­liti til rétt­inda barna,“ segir Auður Tinna. „Aftur á móti hefur verið fjallað um þær greinar úr barna­sátt­mál­anum um að ekki megi vísa börnum úr landi sem hafa verið skráð hér frá upp­hafi og í grein­ar­gerð til kæru­nefndar byggðum við meðal ann­ars á því að fjöl­skyldan ætti að fá dval­ar­leyfi á þeim grund­velli að tvö barn­anna féllu þar undir. Kæru­nefndin fjall­aði hins vegar ekk­ert um þá máls­á­stæðu. 

Börn sem þekkja aðeins líf á Íslandi

Brott­vísun Eugene mót­mæltRegína fyrir utan lög­reglu­stöð­ina við Hverf­is­götu þegar brott­vísun Eugene var mót­mælt.

Stundin hefur fjallað ítar­lega um fjöl­skyld­una und­an­farið ár. Regina og Eugene koma bæði frá Nígeríu og flúðu bæði landið vegna ofsókna. Regína hefur ekki komið til Nígeríu síðan hún var sex ára gömul en þá flúði hún til Líbíu ásamt systur sinni. Leiðir þeirra systra skildu hins vegar árið 2008 þegar Regina flúði til Ítalíu, en þar kynnt­ist Eugene. Elsti sonur þeirra, Daniel, fædd­ist á Ítalíu en hann er nú fimm ára gam­all. Hann var því ein­ungis tæp­lega tveggja ára þegar fjöl­skyldan kom hingað til lands fyrir um þremur árum síðan. Yngri börnin tvö, Felix og Precious, fædd­ust hér á landi og þekkja ekk­ert annað en lífið á Íslandi.

Málið hefur vakið tals­verða athygli hér á landi en efnt var til mót­mæla við lög­reglu­stöð­ina á Hverf­is­götu þegar Eugene var vísað úr landi í sumar. Hann var kom­inn með tíma­bundið atvinnu­leyfi og hafði unnið á veit­inga­staðnum Sægreif­anum í Reykja­vík í fimm daga þegar lög­reglan hand­tók hann í þeim til­gangi að vísa honum úr landi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár