Maðurinn sem vildi vera selurinn Snorri

„Ég mundi draga úr dóm­hörku minni sem keyrð er áfram af for­dómum. Ég er alltof for­dóma­fullur,“ segir Hans Kristján Árnason, sem situr fyrir svörum hjá Vigdísi Gríms­dóttur.

Maðurinn sem vildi vera selurinn Snorri

Nafn: Hans Kristján Árnason.

Fæð­ing­ar­dagur og ár: 5. októ­ber 1947.

Starf: ... ell­ismellur.

1. Hvað er það skemmti­leg­asta sem þú gerir?

Maður er manns gaman. Ekkert er skemmti­legra en að vera með skemmti­legu fólki. Ef þetta fólk finnst ekki þá er ég skemmti­leg­astur með sjálfum mér.

2. Líf eftir þetta líf?

Ætla bara að sjá til. (Eða eins og Írinn spurði sjálfan sig: Is there life before death?)

3. Hvað er það neyð­ar­leg­asta sem þú hefur lent í ?

Það neyð­ar­leg­asta sem ég hef komið mér í (af ótelj­andi slíkum til­fellum) er þegar ég full­yrti fyrir framan hund­ruð manna í kennslu­stund í Uni­versity of London (LBS) að Ísland væri stétt­laust land. Úff, hvað ég roðn­aði á eftir þegar ég fatt­aði heimsk­una, en ég þorði ekki að leið­rétta mig í marg­menn­inu.

4. Ertu póli­tískur?

Jahá!

5. Trúirðu á til­vilj­anir?

Jahá! – nema þegar það er aug­ljós­lega engin til­viljun.

6. Ef þú ættir eina ósk sem myndi örugg­lega ræt­ast, hver væri hún?

Friður. Að mað­ur­inn hætti að drepa mann­eskjur. Að stríð væru úti­lokuð og að Sam­ein­uðu þjóð­irnar virk­uðu eins og hug­sjónin lof­aði.

7. Ef þú gætir breytt ein­hverju sem þú hefur gert, hverju mynd­irðu breyta?

Ég mundi draga úr dóm­hörku minni sem keyrð er áfram af for­dómum. Ég er allt of for­dóma­fullur.

8. Hverju mynd­irðu breyta á Íslandi ætt­irðu þess kost?

Veðrinu, – djók. Stjórn­ar­skránni. Ég er fylgj­andi nýju Stjórn­ar­skránni.

9. En í heim­inum?

Að Sam­ein­uðu þjóð­irnar fylgdu upp­haf­legu hug­sjón­inni um frið og mann­rétt­indi.

10. Ef þú skrif­aðir ljóða­bók, hvaða nafn gæf­irðu henni?

Skand­in­av­ísk skást er trú – og hanaNÚ!

11. Hver er afstaða þín til flótta­manna?

Að tekið sé jafn vel á móti flótta­fólki og tekið var á móti Íslend­ingum sem flúðu Ísland eða fluttu til Vest­ur­heims í lok 19. aldar.

12. Hvaða dýr mynd­irðu vilja vera fen­g­irðu tæki­færi til þess?

Selurinn Snorri.

13. Segðu okkur eitt­hvað um ást­ina og byrj­aðu á Ástin er ...:

Ástin er á flæðiskeri stödd. (I love you too) eða eins og faðir minn sagði við elsta son minn (sem er kvik­mynda­smiður) rétt áður en pabbi lést; Árni Páll minn, gerðu mynd um ást­ina ...

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

13 spurningar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár