Maðurinn kom að heimili hennar eftir að henni var synjað um nálgunarbann

Hanna Kristín Skafta­dóttir fær ekki frið fyrir mann­inum sem var hand­tek­inn fyrir að ráð­ast á hana. Lög­reglan hafn­aði því að setja nálg­un­ar­bann á mann­inn.

Maðurinn kom að heimili hennar eftir að henni var synjað um nálgunarbann
Hanna Kristín Skafta­dóttir Hefur opnað sig um heim­il­is­of­beldi, en fékk stefnu frá mann­inum sem hand­tek­inn var fyrir að beita hana ofbeldi. Mynd: Facebook / Hanna Kristín Skaftadóttir

Þrátt fyrir að fyrr­ver­andi kær­asti hennar hafi verið hand­tek­inn fyrir að beita hana ofbeldi og hann láti hana ekki í friði, hefur Hanna Kristín Skafta­dóttir ekki fengið Lög­regl­una á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að sam­þykkja að mann­inum verði meinað að nálg­ast hana. 

Maðurinn kom að heim­ili hennar í gær.  „Síminn hringir og hringir og sms hrúg­ast inn. Hann er að leita að mér,“ lýsir hún í færslu á Facebook.

Þarf meira slæmt að gerast?

Í færsl­unni á Facebook vill Hanna Kristín láta fólk vita, rétt eins og hún hefur til­kynnt málið til 112. Hún ótt­ast nefni­lega að eitt­hvað svaka­legt þurfi að ger­ast til þess að hún fái frið. 

Hún hefur kært mann­inn fyrir að beita sig ofbeldi, ásamt því að leggja fram áverka­vott­orð. Maðurinn setur sig stöðugt í sam­band við hana og sinnir því ekki þegar hún biður hann að hætta.

„Beiðni minni um nálg­un­ar­bann á hendur fyrrum kærasta míns var hafnað fyrir nokkru síðan. Síðan þá hefur ekki liðið sá dagur að mað­ur­inn með einum eða öðrum hætti setji sig ekki í sam­band við mig. Við erum að tala um mann sem sér­sveitin var kölluð til út af fyrir ca 3 vikum, þegar hann var hand­tek­inn fyrir ölv­un­arakstur. Sér­sveit­ina. Eftir ölv­un­arakstur. Hvernig getur lög­reglan talið að öryggi mínu sé ekki ógnað?“

„En hvað þarf til?“

Hanna Kristín seg­ist horfa í kringum sig þegar hún fer út um dyrnar á heim­ili sínu. Hún spyr sig hvort eitt­hvað fleira slæmt þurfi að ger­ast til þess að hún fái frið. Því kerfið vill ekki taka af skarið og tak­marka rétt manns­ins til að nálg­ast hana.

„Til­finn­ingin að vera í mínum sporum er ólýs­an­leg. Skrýtið sam­bland af bar­áttu­vilja en á sama tíma full­komnu skorti á þreki og dep­urð. Mikill ótti en samt öryggi í að á ein­hverjum tíma­punkti mun eitt­hvað svo slæmt ger­ast og ÞÁ verður hann hand­tek­inn. En hvað þarf til?“ spyr hún.

Lög um nálg­un­ar­bann virka með þeim hætti að ef lagt er á nálg­un­ar­bann getur sak­born­ingur áfrýjað því til hér­aðs­dóms. Ef því er hins vegar synjað getur þol­andi skotið synj­un­inni til rík­is­sak­sókn­ara. Hanna Kristín hefur áfrýjað mál­inu til rík­is­sak­sókn­ara og er beðið nið­ur­stöðu hans.

„Hún fær ekki frið“

„Við teljum vera rök fyrir nálg­un­ar­banni og sér í lagi eftir sam­skipti und­an­farna daga, þar sem mað­ur­inn er stöðugt að hafa sam­band við hana. Hún fær ekki frið,“ segir  Arnar Þór Stef­áns­son, lög­maður Hönnu Krist­ínar. „Það er ein­hver rann­sókn í gangi, láttu þá bara brota­þol­ann í friði,“ bætir hann við.

Sendi lögfræðihótun

Hanna Kristín er ekki eina konan sem greint hefur frá sam­bæri­legri reynslu af mann­inum. „Ég var í sömu sporum með þessum sama manni í allt, allt of langan tíma,“ sagði önnur kona á Facebook, sem lýsti einnig ofbeldi af hans hálfu.

Fyrir utan að setja sig í sam­band við hana og koma að heim­ili hennar hafa við­brögð manns­ins, Magnúsar Jóns­sonar, verið að senda Hönnu Kristínu lög­fræði­kröfu þar sem hann fer fram á að hún greiði henni 1,5 millj­ónir króna vegna meið­yrða. Þar er einnig lögð fram krafa um að hún „verði látin sæta ýtr­ustu refs­ingu sem lög leyfa“, en meið­yrði flokk­ast undir almenn hegn­ing­ar­lög og er hámarks­refs­ing fang­els­is­vist. Meðal ann­ars hótar Magnús að kæra Hönnu Kristínu á grund­velli þess að hún hafi sagt frá „einka­mál­efnum“ og svo að hún hafi breitt út hat­ursá­róður og móðgað eða smánað fyrr­ver­andi maka. Laga­greinar sem lög­maður Magnúsar vitnar hafa refsiramma upp á tveggja ára fang­els­is­dóm, og er farið fram á hámarks­refs­ingu.

Sjálfur hefur hann tví­vegis verið hand­tek­inn fyrir ölv­un­arakstur frá því að hann kom aftur frá Texas, þar sem hann var hand­tek­inn fyrir lík­ams­árás á hendur þáver­andi kær­ustu sinni, Hönnu Kristínu, í mars. 

 Færsla Hönnu Kristínar

Ég heyri strák­ana mína hlægja. Þeir eru í rúm­inu mínu að horfa á Guar­di­ans of the Galaxy fyrir hátt­inn. "Mamma! er baðið nice?" Mikael skott­ast inn og strýkur mér um hárið og kyssir mig á ennið. Ég rétt náði að þurrka tárin. Þeir vita ekk­ert. Bað og kerta­ljós. Það hjálpar manni aðeins að slaka á. Síminn hringir og hringir og sms hrúg­ast inn. Hann er að leita að mér.

Beiðni minni um nálg­un­ar­bann á hendur fyrrum kærasta míns var hafnað fyrir nokkru síðan. Síðan þá hefur ekki liðið sá dagur að mað­ur­inn með einum eða öðrum hætti setji sig ekki í sam­band við mig. Við erum að tala um mann sem sér­sveitin var kölluð til út af fyrir ca 3 vikum, þegar hann var hand­tek­inn fyrir ölv­un­arakstur. Sér­sveit­ina. Eftir ölv­un­arakstur. Hvernig getur lög­reglan talið að öryggi mínu sé ekki ógnað?

Núna er ég fangi. Frelsi mitt er lítið sem ekk­ert. Stöðugur ótti. Mig langar ekk­ert meira en að ein­hver taki utan um mig og segi af full­komnu öryggi "þetta verður allt í lagi".... en nei, ég kasta dag­lega Molotov kok­teilum í átt að öllum þeim sem koma nálægt mér því ég vil ekki að fleiri flæk­ist inn í líf mitt. Tel mig vera að vernda fólk með því að halda þeim frá mér. Þetta er mitt vanda­mál, mín bar­átta og ég þarf að þrauka. Verð að sigra. Vera sterk. Alltaf að vera sterk og jákvæð.

Ef ég sýni ótta þá skynja strák­arnir mínir það og umfram allt þarf ég að halda dag­legri rútínu án þess að þeir skynji hvað sé í gangi. Ég þarf að vinna mína vinnu með bros á vör og skýrri hugsun. Halda fókus. Koma drengj­unum í skól­ann og vera til staðar með hlýju í hjarta og hella upp á kakó og gefa þeim köku. Aftur, vera sterk og með bros á vör. Leyfa þeim að upp­lifa það frelsi að búa við öryggi. 

En... hopp­andi höfr­ungar! - hvað þetta er hrika­lega erfitt. Stöðugt áreiti allan dag­inn, sama hvaða leiðir hann notar til að nálg­ast mig.

Er ekki nóg að ég hafi lagt fram kærur í nokkrum liðum um lík­am­legt ofbeldi? Að það sé til áverka­vott­orð af lík­ams­á­verkum mínum, nokkur? Að hann hafi í beinum orðum haft í hót­unum við mig? Að hann hafi birt nekt­ar­mynd af mér á facebook? Að hann setji sig stöðugt í sam­band við mig allan sól­ar­hring­inn? Að hann komi upp að heim­ili mínu til að athuga hvort ég sé heima? Að hann sé með ágisk­anir um að ég sé að hitta hinn og þennan mann og leiti þá uppi?

Hvar drögum við mörkin? Hvað er hægt að gera? 

Til­finn­ingin að vera í mínum sporum er ólýs­an­leg. Skrýtið sam­bland af bar­áttu­vilja en á sama tíma full­komnu skorti á þreki og dep­urð. Mikill ótti en samt öryggi í að á ein­hverjum tíma­punkti mun eitt­hvað svo slæmt ger­ast og ÞÁ verður hann hand­tek­inn. En hvað þarf til?

Þetta er ekk­ert líf fyrir þann sem þarf að þola stöðugt áreiti. Maður ein­angr­ast mikið og upp­lifir van­mátt gagn­vart aðstæðum. Ég lít stöðugt um öxl þegar ég fer út að skokka ein. Opna hurð­ina heima var­lega og lít í kringum mig. 

En að hlusta á hlátur drengj­anna minna, ótta­leysið þeirra... það fleytir mér áfram. Það hjálpar mér að vera sterk og brosa. Sama hversu erfitt þetta er. Það er býsna stór áskorun að standa keik í þessum aðstæðum og við­ur­kenna van­mátt sinn og þurfa að horfast í augu við að þetta eru aðstæður núna og von­andi kemur betra tíma­bil eftir þetta. Eins og pabbi minn hefur alltaf sagt af sinni stóísku ró "This too shall pass".

Búin að hringja í 112 í kvöld og láta vita af áhyggjum mínum. Þið vitið af áhyggjum mínum. Lögmaður minn stendur þétt við bakið á mér. Krossum fingur og vonum að næst fáist nálg­un­ar­bannið í gegn án þess að það þurfi eitt­hvað svaka­legt að ger­ast í milli­tíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár