Æðstu stjórnendur ríkisins fá ekki lengur afslátt af áfengi

Áfeng­is­kaupa­fríð­indi æðstu stofn­ana rík­is­ins hafa verið afnumin.

Æðstu stjórnendur ríkisins fá ekki lengur afslátt af áfengi
Benedikt Jóhann­es­son Fjár­mála­ráð­herra lagði til breyt­ing­una. Mynd: Pressphotos

Samkvæmt til­lögu Bene­dikts Jóhann­es­sonar fjár­mála­ráð­herra hefur rík­is­stjórnin nú sam­þykkt að æðstu stofn­anir rík­is­ins muni ekki lengur fá afslátt af kaupum á áfengi, eins og verið hefur.

Fram að þessu hafa rík­is­stofn­anir og þar með talið ráðu­neyti, for­seti Íslands, biskup Íslands og Alþingi, fengið áfeng­is­gjald nið­ur­fellt. Þetta verður ekki lengur í gildi eftir 1. októ­ber næst­kom­andi. 

Fyr­ir­komu­lagið hefur falið í sér skatta­styrk úr rík­is­sjóði til áfeng­is­kaupa fyrir æðstu stjórn­endur rík­is­ins og starfs­menn þeirra. 

„Þessar reglur voru barn síns tíma og mér þótti við hæfi að færa þær til nútím­ans og gera kostnað vegna áfeng­is­kaupa gagn­særri. Eitt á yfir alla að ganga í þessu sem öðru. Ekki er gert ráð fyrir að bæta ráðu­neyt­unum þetta með auknu fjár­magni.“ segir Benedikt Jóhann­es­son í yfir­lýs­ingu sem send er vegna máls­ins.

Samtals fengu við­kom­andi stofn­anir 10,5 millj­óna króna skatta­af­slátt í fyrra vegna kaupa á áfengi.

Þeir sem gegna við­kom­andi stöðum hafa ekki mátt, reglum sam­kvæmt, nota skatta­af­slátt­inn til kaupa á áfengi til per­sónu­legra nota. „Heim­ildin hefur verið háð því að þær vörur sem keyptar eru séu not­aðar til risnu á þeirra vegum og að kaupin séu færð í bók­hald og greidd af þeim,“ segir í yfir­lýs­ingu rík­is­stjórn­ar­innar.

Hins vegar hafa komið upp umdeild mál þar sem grunur hefur verið um mis­notkun á heim­ild­inni til kaupa á áfengi með afslætti. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár