Komnir á Tinder eftir ásakanir og dóma fyrir ofbeldi gegn konum

Ungur maður, sem dæmdur var nýlega fyrir tvær hrotta­legar nauðg­anir, leitar eftir kynnum við konur á stefnu­móta­app­inu Tinder. Annar maður, ódæmdur, hefur verið ásak­aður um alvar­legt heim­il­is­of­beldi af fleiri en einni konu og fer fram á fang­els­is­vist yfir einni þeirra vegna frá­sagnar hennar.

Komnir á Tinder eftir ásakanir og dóma fyrir ofbeldi gegn konum
Í leit að kynnum Konum hefur und­an­farið verið bent á að tveir menn, sem eru nú á stefnu­móta­app­inu Tinder, hafi verið til umræðu vegna alvar­legra mála. Mynd: Tinder / Samsett mynd

Ungur maður sem nýverið var dæmdur fyrir hrotta­fengnar nauðg­anir er kom­inn á stefnu­móta­appið Tinder þar sem hann reynir að kom­ast í kynni við konur.

Tinder gengur út á að gera fólki kleift að tengj­ast öðrum sem hafa nán­ari kynni í huga. Tak­mark­aðar upp­lýs­ingar eru um fólk á Tinder og byggir for­ritið á því að not­endur velji eða hafni á útlits­legum for­sendum og svo byggt á því sem not­endur skrifa um sjálfa sig.

Elvar Sig­munds­son var dæmdur fyrir tvær nauðg­anir fyrir hálfu ári. Báðar stúlk­urnar voru sextán ára gamlar. Önnur stúlkan hefur greint frá því að hún búi aðeins í 15 mín­útna fjar­lægð frá mann­inum, nú þegar hann hefur verið settur í opið úræði á Vernd í Laug­ar­dalnum í Reykja­vík, hálfu ári eftir dóm­inn.

Gagnrýnt hefur verið að hann hafi ekki sætt gæslu­varð­haldi í fyrra, ekki síst í ljósi þess að sex dögum eftir ofbeld­is­fulla nauðgun nauðg­aði hann annarri sextán ára stúlku, sem náði að flýja undan honum í blóði sínu eftir að vinir Elvars heyrðu hjálp­ar­kall frá henni í læstum bíl­skúr. „Hún öskr­aði bara og kom ekki orði upp úr sér. Það frusu eig­in­lega allir,“ sagði vitni í mál­inu, vinur Elvars, sem kom að nauðg­un­inni.

Und­an­farið hafa stúlkur verið var­aðar við því á sam­fé­lags­miðlum að Elvar, sem hafi þessa for­sögu, sé á Tinder undir nafn­inu Elvar. Hann hefur einnig kallað sig Elvar Miles.

Á Tinder eftir ásakanir um heimilisofbeldi

Annar maður, sem hand­tek­inn var í Banda­ríkj­unum í mars, eftir að sam­býl­is­kona hans hlaut alvar­lega áverka og kall­aði til lög­reglu, er einnig kom­inn á Tinder í leit að nýjum kynnum. Fleiri en ein kona hafa greint frá því að hann hafi beitt þær ofbeldi, en hann hefur ekki verið dæmdur.

Hanna Kristín Skafta­dóttir opn­aði sig um atvik í mars, þar sem mað­ur­inn var hand­tek­inn eftir að lög­reglan var kölluð til á Four Seasons hót­el­inu í Austin í Texas, þar sem hún var á ferða­lagi til að halda fyr­ir­lestra.

„Ég var í sömu sporum með þessum sama manni í allt, allt of langan tíma,“ sagði önnur kona á Facebook, sem lýsti einnig ofbeldi af hans hálfu.

Maðurinn, Magnús Jónsson, hefur tví­vegis verið hand­tek­inn fyrir ölvun við akstur frá því hann kom aftur til lands­ins. Í öðru til­vik­inu, í Borg­ar­nesi í apríl síð­ast­liðnum, lagði sam­ferða­kona hans á flótta undan honum og kall­aði til lög­reglu og síðar lög­mann.

Hann hefur ekki verið dæmdur fyrir ofbeld­is­málin.

Vill 1,5 milljónir frá konunni og fangelsisvist

Hanna Kristín Skafta­dóttirMaður, sem var hand­tek­inn eftir að hún hringdi á lög­reglu vegna ofbeldis, hefur hótað henni að hann muni fara fram á tveggja ára fang­elsi yfir henni og krefja hana um 1,5 millj­ónir króna vegna frá­sagnar hennar.

Magnús sendi Hönnu Kristínu hótun um mál­sókn vegna frá­sagna hennar af ofbeld­inu í lok júlí.

Þar er lögð fram krafa um að hún „verði látin sæta ýtr­ustu refs­ingu sem lög leyfa“, en meið­yrði flokk­ast undir almenn hegn­ing­ar­lög og er hámarks­refs­ing fang­els­is­vist. Meðal ann­ars hótar Magnús að kæra Hönnu Kristínu á grund­velli þess að hún hafi sagt frá „einka­mál­efnum“ og svo að hún hafi breitt út hat­ursá­róður og móðgað eða smánað fyrr­ver­andi maka. Laga­greinar sem lög­maður Magnúsar vitnar hafa refsiramma upp á tveggja ára fang­els­is­dóm, og er farið fram á hámarks­refs­ingu.

„Ég upp­lifi þetta sem áfram­hald­andi ofbeldi af hans hálfu,“ sagði Hanna Kristín. „En ég stend áfram sterk og keik­ari ef eitt­hvað er fyrir vikið og mun standa and­spænis mann­inum fyrir dóm­stólum með sann­leik­ann að vopni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár