Abrahim átti að vera sendur aftur til Afganistan, þar sem hann hafði átt vonda æsku undir harðræði og ofbeldi talibana, sem myrtu fólk af ættbálki hans. Hann kom því til Íslands í þeirri von að dóttir hans fengi betra líf en hann sjálfur.
Feðginunum Abrahim og Hanyie hefur verið gert að yfirgefa landið.Upplifa sig örugg hér á landi en Abrahim hefur verið á flótta í um 20 ár.Mynd: Heiða Helgadóttir
Það eru ekki allir svo heppnir í lífinu að fá að lifa mannsæmandi lífi.
Því hefur Abrahim Maleki fengið að kynnast á sinni ævi.
Hann var bara 11 ára þegar talibanar réðust inn í hérað hans í Afganistan og byrjuðu að myrða fólk sem tilheyrði hans ættbálki. Talibanarnir sögðu að þeir væru vantrúaðir og því þyrfti að drepa þá.
Hann flúði þá með fjölskyldu sinni til Íran þar sem þau bjuggu í 20 ár.
Brottflutt hvenær sem erÍ úrskurði kærunefndar útlendingamála var ákveðið að feðginunum yrði gert að yfirgefa landið fyrir 19. júlí. Til þess hefur ekki komið enn en þau eiga von á því á hverri stundu að lögreglan banki upp á.
Mynd: Heiða Helgadóttir
Abrahim vann sem smiður í Íran þar til hann lenti í bílslysi fyrir fimm árum síðan og braut illa annan …
Athugasemdir