Ég á afskaplega vel heppnaða konu. Hún er gullfalleg, gáfuð, góð og gröð. Hún er besta móðir í heimi, fer mér miklu framar í að halda heimili, vinnur við og menntar sig í því sem henni finnst skemmtilegt, er frábær kokkur og stundum eiginlega svona óþolandi frábær. En svona líka leiðinleg.
Undanfarið þegar ég hef komið heim úr vinnunni er gjarnan kveikt á sjónvarpinu. Ég hef síðustu ár sokkið í sama farið og heimsbyggðin öll og horft óhóflega á sjónvarpsþáttaseríur. Og það gerir Agnes líka. En ég horfi á skemmtilega þætti. Þessa dagana nýtir hún hverja lausa stund þegar ég er ekki nálægur og horfir á eitthvað sem hún segir að heiti Friday Night Lights. Og alla þætti á Netflix sem heita eitthvað „Wife“. Ég reyndi að gefa þessu Friday-drasli séns en það varð mér geðheilsuspillandi. Enda þótt þátturinn snúist um amerískan fótbolta, íþrótt sem mér líkar mjög, er þetta bara of leiðinlegt. Helvítis sápa og áhyggjufullir, grátandi menn með derhúfur. Þegar enn verr lætur er helvítið hann Dr. Phil í gangi þegar ég kem örþreyttur heim. Það er nú bara ekki hægt. Djöfull er hann leiðinlegur. Þegar ég nota sjónvarpið er bara eitthvað skemmtilegt í því. Ég spila mikið af tölvuleikjum og það er undantekningalaust mjög gaman. Sprengja hluti og keyra mjög hratt. Ræna byssum og drepa skrímsli. Ég horfi líka á mjög mikið af skemmtilegum hljóðfæramyndböndum á YouTube og helst vil ég hafa þau löng og ítarleg. Agnes virðist ekki geta fundið skemmtilegan flöt á hálftímalöngum samræðum um gítarsnúrur. Og svo þegar kemur að því að eyða allri helginni í að horfa á alvöru amerískan fótbolta í beinni þá finnst henni það bara ekkert gaman. Hverfur inn í herbergi og fer að horfa á helvítis derhúfuviðrinið.
Agnes hlustar á leiðinlega tónlist. Sem betur fer ekki eingöngu, en að stórum hluta. Hún er til dæmis að fara á tónleikana með Justin Bieber og þegar hún stjórnar YouTube-inu er voðinn vís. Þegar ég sest upp í bílinn okkar þarf ég oftast að henda mér á útvarpstækið og skipta um stöð. Og auðvitað lækka. Þarf þetta alltaf að vera svona hátt? Ég er búinn að reyna að sannfæra hana um að maður eigi bara að hlusta á útvarpsstöðvar sem byrja á „R“, sumsé Rás 1, Rás 2 og Rondó, en það virðist ekki ná í gegn. Og þegar ég set á klassískt dauðarokk á borð við Deicide eða góða stuðplötu með Slayer virðist hún ekki geta hugsað sér að syngja með. Ég held að henni finnist hljómsveitirnar sem ég er í heldur ekkert skemmtilegar. Og svo syngur hún bara í kór, eins og það sé eitthvað gaman.
„Hún er til dæmis að fara á tónleikana með Justin Bieber og þegar hún stjórnar YouTube-inu er voðinn vís.“
Hún les lítið sem ekkert, nema Gestgjafann og internetið. Ég á ansi marga hillumetra af stórskemmtilegum teiknimyndasögum sem ég reyni oft að segja henni frá. Hún kinkar yfirleitt bara kolli og skiptir ekki svip. Ætli hún sé þá ekki að hugsa um Kyle Chandler. Það er sem sagt gaurinn með derhúfuna, ég var að enda við að gúggla hann. Fáviti. Ég meira að segja gaf út bók fyrir jólin sem hún er ekki hálfnuð að lesa. Ég skrifa það alfarið á helvítið hann Kyle. Allavega er bókin algerlega frábær.
Og hvað er þetta með að þurfa alltaf að setja allt í uppþvottavélina jafnóðum? Það vita allir sem vilja vita að maður hleður leirtauinu í vaskinn þangað til þar er kominn þokkalegur stafli og þá setur maður í vél, og ekki fyrr. Gera allt í einu, ekki dreifa leiðinlegu hlutum á allan daginn. Og já, auðvitað þarf ég að eiga öll þessi hljóðfæri og já, þau þurfa að vera sem allra flest heima hjá okkur. Helst á sófanum svo ég þurfi ekki að standa upp til að skipta um gítar. Eitthvað verð ég að gera á meðan þú horfir á enn eina stelpuna mála á sér augnlokin á internetinu.
Það sem ég er í raun að segja er að við Agnes pössum frábærlega saman. Við erum gríðarlegar öfgar í sitthvora áttina þegar kemur að flestu og við tökumst oft á um hluti. Við gagnrýnum það sem hinu finnst og það sem hitt gerir en við gerum það á uppbyggilegan hátt og hvetjum hvort annað til að teygja okkur út fyrir þægindarammana. Og sko til, nýja platan með Adele er bara drullugóð. Svo góð að ég gaf henni eintak á vínyl í jólagjöf, svona til að opna augu hennar fyrir því hversu gaman er að hlusta á tónlist af grammófóni. Það tókst með ágætum og heimilið er enn skemmtilegra fyrir vikið. Hún gaf mér fallega, rennda prjónapeysu í jólagjöf. Sagði mér að ég ætti nú kannski stundum að drullast til að ganga í einhverju öðru en þungarokkspeysu merktri sjálfum mér. Ég hef ekki farið úr peysunni síðan.
Agnes er nefnilega ekki leiðinleg og reyndar alveg allt annað en það. Hún er bara ólík mér og það er alveg stórkostlegt. Auðvitað er mjög mikilvægur faktor í þessu öllu saman að ég veit að hún er ekki fáviti og þess vegna veit ég að þótt ég sé mjög ósammála hlýtur hún eiginlega að hafa eitthvað til síns máls. Kannski er það ég sem er leiðinlegur, ekki hún. Og þegar við komumst að sameiginlegri niðurstöðu gerast galdrarnir.
Getum við ekki öll gert þetta? Þurfum við alltaf að stimpla aðra sem fávita ef við erum ósammála? Ég held við værum öll á betri stað ef við værum aðeins meira eins og Agnes. Leiðinleg.




















































Athugasemdir