Má rétta yfir Skúla vegna andláts sjúklings

Lands­réttur felldi úr gildi úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­ness yfir Skúla Tómassyni vegna and­láts sjúk­lings sem hann hafði umsjón með árið 2019. Málinu var vísað frá þar sem talið var að úrskurðu Land­læknis um svipt­ingu starfs­leyfis væri ígildi refs­ingar fyrir sama brot.

Má rétta yfir Skúla vegna andláts sjúklings
Hér­aðs­dómur Reykja­ness Máli Skúla var vísað frá Hér­aðs­dómi Reykja­ness í júlí. Mynd: Byggingar.is

Lands­réttur hefur fellt úr gildi úrskurð Hér­aðs­dóms Reykja­ness yfir Skúla Tómassyni en máli hans var vísað frá í júlí þar sem hann var ákærður fyrir mann­dráp og brot gegn lögum um heil­brigð­is­starfs­menn. Málinu var vísað frá á þeim for­sendum að Skúli hefði þegar sætt refs­ingu fyrir brot sitt með ákvörðun Land­læknis sem svipti hann tíma­bundið starfs­leyfi. Það mætti því ekki höfða annað mál þar sem honum hafði þegar verið refsað fyrir brotin sem hann var ákærður fyrir.

Agaviðurlög, ekki refsing

Í úrskurði Lands­réttar sem féll 27. ágúst síð­ast­lið­inn segir að þótt svipt­ing starfs­leyfis sé eðli máls­ins sam­kvæmt þung­bær sé ekki hægt að líta svo á að eðli, mark­mið og umfang þeirra við­ur­laga feli í sér refs­ingu eða refsi­kennd við­ur­lög, heldur sé um aga­við­ur­lög á grund­velli stjórn­sýslu­réttar að ræða.

Nið­ur­staðan er því sú að úrskurður Hér­aðs­dóms Reykja­ness er felldur úr gildi og því mögu­legt að rétta yfir Skúla …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár