„Það er ekki hægt að selja umbúðirnar endalaust“

Pró­fessor emeritus í fjöl­miðla­fræði segir vanta meiri ábyrgð hjá eig­endum fjöl­miðla líkt og þekkt­ist áður. Ráðherra segir það flókið mál að skatt­leggja aug­lýs­inga­tekjur til erlendra sam­fé­lags­miðla.

„Það er ekki hægt að selja umbúðirnar endalaust“
Sýn Sjón­varps­hluti Sýnar var lagður niður í gær. Upp­sagnir voru einnig hjá fyr­ir­tæk­inu því tengdu.

„Meðal þess sem vantar er ábyrg­ari eig­enda­menn­ing fyrir fjöl­miðla,“ segir Birgir Guð­munds­son, pró­fessor emer­ítus í fjöl­miðla­fræði við Háskóla Akur­eyrar, þegar staða fjöl­miðla er skoðuð í ljósi fregna af því að fram­leiðslu sjón­varps­frétta á Sýn hefur verið hætt.

Fram kemur í grein­ingu Hag­stof­unnar sem birt­ist í apríl – og nær til ára­bils­ins 2010 til 2024 – að  tekjur fjöl­miðla af aug­lýs­inga­tekjum voru 36 pró­sentum lægri árið 2024 en árið 2016, sem má rekja til útstreymis aug­lýs­inga­fjár til erlendra aðila. 

Árið 2024 höfðu tekjur fjöl­miðla fallið um millj­arð á milli ára, sem mátti rekja til upp­sagna áskrifta og lækk­unar aug­lýs­inga­tekna. Hlut­deild Rík­is­út­varps­ins í tekjum fjöl­miðla hafði hins vegar auk­ist á milli ára og var 29 pró­sent. „Lætur því nærri að þrjár krónur af hverjum tíu renni til Rík­is­út­varps­ins,“ segir á vef Hag­stof­unnar. 

Af 30,3 millj­arða króna tekjum fjöl­miðla 2024 féllu tæpir 8,7 millj­arður króna …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár