Verðbólgu kennt um uppsagnir á RÚV

Starfs­fólki var sagt upp á RÚV fyrir helgi og áætlað er að fækka starfs­fólki um sem nemur tíu til fimmtán stöðu­gildum. Fregnirnar berast á sama tíma og fram­leiðslu sjónvarps­frétta er hætt á Sýn.

Fréttastofa RÚV
Frétta­stofa RÚV Upp­sagnir eru víða, fregnir hafa borist af upp­sögnum á frétta­stofu Sýnar, auk þess sem fram­leiðslu sjón­varps­frétta hefur verið hætt. RÚV sagði upp fólki fyrir helgi. Mynd: Ragnar Visage

Nokkrum starfs­mönnum RÚV var sagt upp fyrir helgi og ákveðið hefur verið að ráða ekki í störf sem losna vegna starfsmanna­veltu að því er fram kemur á vef RÚV. Það bætist við þau tíðindi að fram­leiðslu á sjónvarps­fréttum á Sýn hefur verið hætt. Ekki kemur fram hvort umræddu starfs­fólki, sem var sagt upp, hafi starfað á frétta­stofu RÚV eða á öðrum deildum RÚV.

Stefán Eiríksson útvarps­stjóri segir að þetta sé hluti af hagræðingu í rekstri Ríkis­útvarpsins að því er fram kemur í umfjöllun RÚV um málið. Hann segir að mikil verðbólga í ár og horfur á næsta ári hafi orðið til þess að óhjákvæmilegt væri að hagræða og fækka starfs­fólki.

Starfs­mönnum fækkar um sem nemur tíu til fimmtán stöðu­gildum. Það gerist að stórum hluta með því að ráða ekki í stöður sem losna vegna hefð­bundinnar starfsmanna­veltu að því er RÚV greinir frá. Stefán segir að …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár