„Eins spennandi og það gæti orðið“

Mjótt er á munum í þjóð­art­kvæða­greiðslu um hvort Ísland eigi að fara í aðild­ar­við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið. Halldór Benjamín Þor­bergs­son fagn­aði á meðan nei var yfir og sagði að í dag hafi tæp­lega 300 mætt til þess að hringja út, 19 hafi hringt yfir 400 sím­töl hver og einn yfir 700 sím­töl. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son segir að búið sé að kljúfa þjóð­ina og Reykja­vík frá lands­byggð­inni. Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir segir að sama hvernig fer þá séum „við öll í sama liði“.

„Eins spennandi og það gæti orðið“

„Þetta er eins spenn­andi og það gæti orðið,“ segir Haf­steinn Birgir Ein­ars­son, doktor í stjórn­mála­fræði, sem stendur vakt­ina á kosn­inga­vöku RÚV í kvöld. Til marks um það voru fyrstu tölur úr Suð­vest­ur­kjör­dæmi hnífjafnar, 9.900 atkvæði fyrir já og 9.900 atkvæði fyrir já.

Framan af var nei-ið með yfir­hönd­ina og sýnt var frá kosn­inga­vöku þar sem Halldór Benjamín Þor­bergs­son stóð sig­ur­reifur á sviði, þar sem hann sagði að þegar veg­ferð nei hreyf­ing­ar­innar Áfram Ísland, þá hefði honum ekki órað fyrir því að þetta væri staðan tveimur mán­uðum síðar. Hann var­aði þó við því að nóttin væri ung og fólk mætti búast við því að vera lengi í þessu partíi. „Barátta Áfram Ísland hófst í mik­illi brekku. Við vorum undir í öllum skoð­ana­könn­unum,“ sagði hann, en alls hafi um 4.000 manns mætti á fundi hreyf­ing­ar­innar sem fram fóru víðs­vegar um landið. 

„Haldið ykkur fast, 19 aðilar hringdu meira en 400 sím­töl, hver og einn“

Þá hafi verið lagt mikið í úthringi­ver. Á kjör­dag hafi 287 manns mætt til þess að hringja út og sá sem hringdi flest sím­töl hringdi 700 sím­töl á einum degi. „Haldið ykkur fast, 19 aðilar hringdu meira en 400 sím­töl, hver og einn.“

Samtals hringdu þessir 20 ein­stak­lingar, af 287, því minnst 8.300 sím­töl í dag. 

Nei yfirFagnað á kosn­inga­vöku nei-hreyf­ing­ar­innar.

Gæti ekki staðið tæpara

Á mið­nætti var já komið yfir með 51,2 pró­sent atkvæða, en búið var að telja um helm­ing atkvæða í Reykja­vík og minna á lands­byggð­inni. Kannanir benda til þess að já sé sterkara í borg­inni en ann­ars staðar á land­inu. Allt bendir til þess að nið­ur­stöður falli í takt við nið­ur­stöður kann­ana. 

Haf­steinn benti á að sam­kvæmt könn­unum verði  Reykja­vík að vera sterkasta kjör­dæmi já til þess að það geti sigrað. Þegar fyrstu tölur þaðan bár­ust var hlut­fallið 59,4%.

Samkvæmt lík­ani sem hann styðst við í kvöld mun það ekki duga til, nema önnur nið­ur­staðan verði sterk­ari en ráð­gert var í öðrum kjör­dæmum.

„Þar var ég með áætlað að já-ið þyrfti að ná 63,5% þannig þar er þetta tölu­vert undir því sem það þyrfti að ná í Reykja­vík norður“

„Miðað við vænt­ingar þá verður Reykja­vík norður að vera sterkasta kjör­dæmi já-sins. Þannig að þar var ég með áætlað að já-ið þyrfti að ná 63,5% þannig þar er þetta tölu­vert undir því sem það þyrfti að ná í Reykja­vík norður. En þetta er auð­vitað breyt­ingum háð,“ sagði Haf­steinn.

Síðan á eftir að telja utan­kjör­staða­at­kvæðin, sem erfitt er að lesa í fyr­ir­fram. 

„Þetta gæti varla staðið tæpara.“

Já komst yfir Gleðin var engu minni á kosn­inga­vöku já-hreyf­ing­ar­innar þegar já komst yfir í kringum mið­nætti.

Já undir viðmiðum 

Allt bendir til þess að nið­ur­stöður séu í takt við síð­ustu spár.

Í flestum kjör­dæmum eru töl­urnar undir við­miði fyrir já, bendir Haf­steinn á. Hins vegar er eitt kjör­dæmi sem sker sig úr, Norð­vest­ur­kjör­dæmi. „Það getur skipt máli úr hvaða kjör­stað er verið að telja.“ Atkvæði sem greidd eru á Akureyri geti verið öðru­vísi en atkvæði sem ber­ast ann­ars vegar úr kjör­dæm­inu.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins sem hefur verið þing­maður kjör­dæm­is­ins, ræddi við RÚV. „Þetta er gríð­ar­lega spenn­andi og virð­ist vera gletti­lega í takt við Gallup-könn­un­ina stóru,“ sagði hann en tók fram að fólk þyrfti vænt­an­lega að vaka langt fram á nótt áður en loka­nið­ur­staðan verður ljós.

Löng nótt framundanMjótt er á munum og enn alls óvíst hver loka­nið­ur­staðan verður.

Hefur ekki áhyggjur af ríkisstjórninni

Í ljósi þess hve mjótt er á munum voru for­menn stjórn­ar­and­stöðu­flokka á Alþingi spurðir hvernig yrði að vinna úr stöð­unni. Sig­mundur svar­aði því til að þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan hefði ekki aðeins klofið þjóð­ina heldur væri búið að „kljúfa Reykja­vík frá rest­inni af land­inu“. Lilja Alfreðs­dóttir var hins vegar öllu jákvæð­ari. Það yrði flókið að vinna úr þessu vegna þess hversu tæpt umboðið verður, en tók um leið fram: „Við sem Íslend­ingar erum vön því að takast á við erfið og flókin verk­efni.“ 

„Það má ekki gleyma því, hvernig sem fer, að við erum öll í sama lið­inu“

Rík­is­stjórnin hefur boðað til blaða­manna­fundar á morgun, þar sem farið verður yfir næstu skref. „Það má ekki gleyma því, hvernig sem fer, að við erum öll í sama lið­inu,“ sagði Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, utan­rík­is­ráð­herra.  „Ég ætla að leyfa mér að vera bjart­sýn.“

Aðspurð hvernig það fari með rík­is­stjórn­ar­sam­starfið ef nei verður ofan á, sagð­ist Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra ekki hafa áhyggjur af því. Formenn rík­is­stjórn­ar­flokk­anna hafi heitið því að virða nið­ur­stöður þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar, sama hvernig fer. „Ég hef ekki áhyggjur af þess­ari rík­is­stjórn.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár