Spennan áþreifanleg í hreyfingum já og nei-sinna

Blaða­maður Heim­ild­ar­innar og ljós­myndari heimsóttu tvo ólíka viðburði tengdum kosningum ESB á miðviku­daginn.

Kristrún Frostadóttir
Kristrún Frosta­dóttir For­sæt­is­ráð­herra Íslands ávarp­aði fund­inn og lagði áherslu á að þjóðin hefði síð­asta orðið. Mynd: Golli

Salurinn í Austurbæjar­bíói er þegar þétt­setinn þegar blaðamann ber að garði í Austurbæjar­bíói á miðvikudaginn. Fólk bíður eftir ávarpi Kristrúnar Frosta­dóttur, eða „loka­skila­boðunum“ í fundar­herferð hennar um landið í tengslum við kosningar um að taka upp aðildar­viðræður við ESB.

Salurinn er rökkvaður og gestir sitja þögulir í sætum sínum og virða fyrir sér sviðið. Nokkrar þétt­setnar sætaraðir eru á sviðinu sjálfu og í því miðju er púltið sem Kristrún mun standa við innan skamms, eins og í hringleika­húsum Grikkja til forna. Á púltinu stendur „Þjóðin ræður“ og snævi þöktu Íslandi er varpað á skjáinn fyrir aftan.

Ráðherra og íslands­kortiðLjós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar sá fljótt eitt­hvað ein­kenni­legt við kortið.

Ljós­myndari Heimildarinnar, Golli, er þó snöggur að átta sig á því að ekki er allt með felldu. „Það vantar Gríms- og Hrísey á kortið,“ hvíslar hann og bendir á kortið. „Það …

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÞÁ
    Þröstur Ásmundsson skrifaði
    Ég sá útsendinguna...einhvern veginn finnst mér lýsingin á henni ... hálfkauðsleg!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár