„Ég hef ekkert til að kvarta yfir“
Sara og börnin hennar Sara Margrét segir yngstu börnin hafa átt erfitt með að skilja veik­indi móður sinnar. Mynd: Golli

„Ég hef ekkert til að kvarta yfir“

Söru Margréti Bergmann var kippt út úr lífi þriggja barna sinna þegar hún lam­að­ist skyndi­lega frá toppi til táar. End­ur­hæf­ingu hennar miðar vel og hún nýtur litlu hlut­anna í líf­inu. „Ég get verið glöð og þakk­lát fyrir allt, jafn­vel þó ég verði alltaf í þessum stól.“

Sara Margrét Bergmann hélt á eins árs gömlum syni sínum þegar hún átt­aði sig á því að eitt­hvað væri að.

Hún er fædd og upp­alin á Sel­tjarn­ar­nesi og býr þar enn með mann­inum sínum, Tryggva, og þremur börnum. „Þegar ég veikt­ist voru börnin eins árs, tveggja ára og sex ára,“ segir hún. „Tvær stelpur og strák­ur­inn er sá yngsti.“

Í nóv­em­ber í fyrra var hún 35 ára og komin á fremsta hlunn með að klára gráðu í hjúkr­un­ar­fræði. „Ég var búin að fara í alls konar annað nám en var ekki að finna mig í því,“ segir hún. „Svo starf­aði ég í svo­lít­inn tíma sem flug­freyja hjá WOW Air. Þegar ég varð ófrísk að fyrstu stelp­unni minni og komin í fæð­ing­ar­or­lof þá hætti WOW. Mig hafði alltaf langað að verða ljós­móðir og að eign­ast stelpuna mína vakti áhug­ann aftur.“

Til að geta lært ljós­móð­ur­fræði þurfti hún fyrst …

Kjósa
43
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Dugleg og jákvæð kona ! Gangi þér sem best að ná bata.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Lífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár