Tveir í gæsluvarðhald vegna árásar á Kársnesinu

Tveir menn, annar íslenskur, hinn erlendur ríkis­borgari, voru úrskurðaðir í gæslu­varðhald grunaðir um að hafa ráðist á mann í Kópavogi á fimm­tugs­aldri. Sá lést af sárum sínum eftir árásina.

Frá aðgerðum lögreglu
Frá aðgerðum lög­reglu Fjöldi lög­reglu­manna réðst í aðgerðir í Gnoða­vogi í Reykja­vík í gær vegna máls­ins. Mynd: BHJ

Tveir karlmenn voru úrskurðaðir í gæslu­varðhald í Héraðs­dómi Reykjaness í dag grunaðir um aðild að árás á mann í Kópavogi sem leiddi til andláts hans skömmu síðar. Dómari féllst á gæslu­varðhalds­kröfu lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu á grund­velli rannsóknar­hagsmuna að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglu.

Annar maðurinn var úrskurðaður í varðhald til 21. ágúst en hinn til 17. ágúst. Þá er sérstak­lega tekið fram í tilkynningu lögreglu að mennirnir tveir séu annars vegar Íslend­ingur en hins vegar erlendur ríkis­borgari. Ekki er tekið fram hvaðan sá maður er.

Mennirnir eru grunaðir um að hafa farið inn á heimili þolanda í Kópavogi í gær og ráðist þar á hann með þeim afleiðingum að hann lést síðar sama dag á Land­spítalanum. Sá maður var einnig erlendur ríkis­borgari og var á fimmtugsaldri.

Lögreglan var með mikinn viðbúnað vegna málsins í gær og voru gerðar húsleitir og nokkrir hand­teknir í tengslum …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár