Er Evrópusambandið í alvörunni vinsælla en nokkru sinni fyrr?

Evrópu­sambandið er eins og veðrið – sama hvernig vindurinn blæs virðist alltaf ástæða til að bölsótast yfir því. En hvað finnst íbúum ESB raun­verulega um sambandið?

Svo virðist sem Evrópu­sambandið hafi aldrei verið vinsælla. Samkvæmt nýrri viðhorfs­könnun Evrópu­sambandsins, Eurobarometer, telja 74% íbúa ESB heimaland sitt hafa gagn af því að tilheyra sambandinu. Er það hæsta hlutfall sem mælst hefur frá því að spurningin var fyrst lögð fyrir árið 1983, jafnt fyrra meti frá árinu 2025.

Sama könnun sýnir að 75% Evrópubúa telja sambandið athvarf stöðug­leika í óvissum heimi – 8% fleiri en í lok síðasta árs – og 68% vilja að sambandið leiki stærra hlutverk þegar kemur að því að vernda íbúa þess gegn hnattrænum áskorunum og öryggis­ógnum.

Freistandi gæti verið fyrir forsvars­menn Evrópu­sambandsins að setja á ís flösku af kampavíni, uppruna­vottuðu samkvæmt reglum sambandsins. En þótt lands­lagið virðist skýrt er myndin öllu flóknari en útlínurnar gefa til kynna.

Ánægjan á sér takmörk

Þótt þegnar ríkja Evrópu­sambandsins styðji aðild að sambandinu eru þeir gagnrýnir á verklag þess.

Gögn frá alþjóð­lega …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Og merkilegt er að skoða afstöðu fólks eftir búsetu - borg/þéttbýli eða sveit/landsbyggð. Þá kemur í ljós að ég sem höfuðborgarbúi hef álíkar skoðanir og íbúi Berlinar, Parisar eða Rómar en allt aðrar en íbúi Akureyrar eða Vopnafjarðar, sem dæmi er nefnt.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár