„Smáríki þurfa skjól“

Gunn­hildur Lilý Magn­ús­dóttir, dós­ent við Háskól­ann í Malmö og sér­fræð­ingur í alþjóð­legri stöðu ríkja á Norð­ur­löndum, segir mik­il­vægt að rýna í hlut­skipti smá­ríkja í Evr­ópu­sam­band­inu til að átta sig á stöðu Íslands þegar kemur að mögu­legum aðild­ar­við­ræðum.

„Smáríki þurfa skjól“

Sem sér­fræð­ingur í evr­ópskum stjórn­málum og dós­ent í stjórn­mála­fræði er Gunn­hildur Lilý Magn­ús­dóttir jafn­framt sér­fræð­ingur í evr­ópskum stjórn­málum, þar með talið stjórn­málum Norð­ur­land­anna. Auk þess að leggja áherslu á mik­il­vægi þess að rýna í hlut­skipti smá­ríkja í Evr­ópu­sam­band­inu bendir hún á að eins sé mik­il­vægt að skilja hvernig ákvarð­ana­taka innan sam­bands­ins fer fram. 

Heim­ildin leit­aði álits hennar um þessi brýnu álita­mál í aðdrag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar. Þótt hennar sér­svið sé einkum á sviði lofts­lags­stjórn­mála og jafn­réttis, hefur Gunn­hildur æði sér­stæða inn­sýn í innri virkni Evr­ópu­sam­bands­ins frá sjón­ar­hóli Norð­ur­landa­ríkis þar sem hún hefur lengi starfað. En aðspurð um þau við­mið sem við hér á landi ættum að leita eftir varð­andi þessa marg­um­ræddu, hugs­an­legu aðild­ar­við­ræður að ESB, þá bendir sér­fræð­ing­ur­inn raunar út fyrir Norð­ur­löndin í leit að sam­an­burði fyrir Ísland; til ríkja í Mið­jarð­ar­hafi og úti í Eystra­salti, en það er vita­skuld allrar athygli vert fyrir okkur eyja­búa í Norður-Atl­ants­hafi.

Út fyrir …

Kjósa
42
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GÁ
    Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
    Ísland þurfti skjól fyrir ESB í Icesave málinu og það fannst að lokum hjá EFTA dómstólnum.

    Ísland þarf ennþá skjól fyrir því sama því ESB krefst enn ríkisábyrgðar á innstæðutryggingar.

    Ísland hefði líka þurft skjól fyrir verndatollum ESB á kísilmálm, en þess var ekki leitað af festu.

    Ísland hefði líka þurft skjól fyrir viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir, en fékk bara plástur.

    Á óskiljanlegan hátt er samt til fólk sem heldur að eitthvað "skjól" sé að finna innan ESB.
    -9
    • E
      Egill skrifaði
      Mögulega fæst skjól í ESB fyrir innlendum einstaklingum, hagsmunahópum og stjórnmálamönnum sem hafa ráðskast með landið og landsmenn eins og þeim hefur þóknast.
      1
    • GÁ
      Guðmundur Ásgeirsson skrifaði
      Egill. Fæst eitthvað skjól með því að fela erlendum einstaklingum, hagsmunahópum og stjórnmálamönnum að ráðskast með landið og landsmenn eins og þeim þóknast? Evrópusambandið er hagsmunahópur sem er stýrt af einstaklingum og stjórnmálamönnum. Telur þú að þeir séu einhverskonar frelsunarenglar?
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Horft til Evrópu

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu