„Eftir HM munu mjög líklega einhverjir leita sér aðstoðar“

Áætlað er að heims­meistaramót karla í knatt­spyrnu sem nú fer fram verði stærsti veðmála­viðburður í heimi. Anna Hildur Guðmunds­dóttir formaður SÁÁ segir Ísland ekki undan­skilið slíkri spá. Innan við tíu prósent af þeim sem glíma við spilafíkn leita sér aðstoðar.

Veðjað á HM
Veðjað á HM „Eftir HM munu mjög lík­lega ein­hverjir leita sér aðstoðar,“ segir Anna Hildur. Mynd: SÁÁ

„Auðvitað eigum við að taka mark á því sem er verið að segja, að þetta sé stærsti veðmála­viðburður í heimi. Það er ekkert undan­skilið hér frekar en annars staðar,“ segir Anna Hildur Guðmunds­dóttir formaður Samtaka áhuga­fólks um áfengis- og vímuefna­vanda, SÁÁ. „Litla Ísland sleppur ekkert þótt við höldum það stundum.“ Fjár­hættuspil hafa löngum verið tengd við íþrótta­viðburði en í júní birti BBC frétt þess efnis að heims­meistaramót karla í knatt­spyrnu, sem nú fer senn að ljúka, yrði stærsti veðmála­viðburður í sögunni. Gert er ráð fyrir því að yfir fimmtíu milljarðar bandaríkja­dala, um 6,7 billjónir íslenskra króna, fari í veðmál meðan á mótinu stendur.

Stærsti veð­mála­við­burð­ur­innHM er stærsti veð­mála­við­burður sög­unnar.

Anna Hildur segir að afleiðingar spila­fíknarinnar komi oft fram nokkrum vikum eftir að fíknin hefst. Hún segist því búast við að áhrif mótsins muni verða sýnilegri í haust. …

Kjósa
5
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár