Hver fékk hvað við samningaborðið í Reykjavík?

Hver fékk hvað við samningaborðið í Reykjavík?

Lang­flest lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni koma frá Sjálf­stæð­is­flokknum. Viðreisn kemur við sögu á völdum sviðum, einkum hús­næðis- og skipu­lags­málum, en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn virð­ist minnst sýni­legur. Nokkur lof­orð í stefnu­yf­ir­lýs­ing­unni er ekki að finna hjá neinum flokk­anna þriggja, einkum þau sem snúa að smá­at­riðum í rekstri borg­ar­innar.

Þegar meiri­hluta­samn­ingur Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og Fram­sókn­ar­flokks­ins var und­ir­rit­aður í kjöl­far sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga fylgdi honum stefnu­yf­ir­lýs­ing í formi verk­efna­lista.

Sam­an­burður á birtum stefnu­skrám flokk­anna fyrir kosn­ingar og þessum lista gefur mynd af því hvaða kosn­inga­lof­orð röt­uðu inn í meiri­hluta­sam­starfið, hver hurfu og hvar finna má nýjar áherslur sem ekki voru áber­andi í kosn­inga­bar­átt­unni.

Sterkur keimur Sjálfstæðisflokksins

Það er erfitt að lesa stefnu­yf­ir­lýs­ing­una án þess að sjá skýran þráð: Hún ber sterkan keim af stefnu Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Flokk­ur­inn er stærstur í meiri­hlut­anum með níu borg­ar­full­trúa en sam­starfs­flokk­arnir þrjá og því kannski ekki óvænt nið­ur­staða. Meiri­hluta lof­orð­anna má rekja efn­is­lega til stefnu­skrár flokks­ins og í nokkrum til­vikum er orða­lagið mjög líkt.

Þetta á sér­stak­lega við um fjár­mála- og rekstr­ar­mál. Loforð um að selja CarbFix og Ljós­leiðar­ann, und­ir­búa sölu Mal­bik­un­ar­stöðv­ar­innar, bjóða út sorp­hirðu, fækka borg­ar­full­trúum úr 23 í 15, inn­leiða arð­sem­is­mat á fjár­fest­ingar og hag­ræða sem nemur að lág­marki einum millj­arði króna á ári, eru öll …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Borgarstjórnarkosningar 2026

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár