Hildur boðar til fundar í Viðey

Hild­ur Björns­dótt­ir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks í borg­ar­stjórn, hef­ur boð­að til blaða­manna­fund­ar í Við­ey í dag. Rúm vika er síð­an flokk­ur henn­ar vann stór­an sig­ur í borg­ar­stjórn­ar­kosn­ing­um og hef­ur hún hald­ið spil­un­um þétt að sér síð­an.

Hildur boðar til fundar í Viðey
Við stýrið Umboð Hildar til meirihlutaviðræðna hefur verið óumdeilt en flokkur hennar fékk 9 af 23 fulltrúum í borgarstjórn. Mynd: Golli

Draga mun til tíðinda í dag í borgarstjórn Reykjavíkur en Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn, hefur boðað til blaðamannafundar í Viðey fyrir hádegi.  Rúm vika er síðan flokkur hennar vann sigur í borgarstjórnarkosningum og fékk 9 fulltrúa kjörna. 

Lítið hefur hins vegar spurst út um meirihlutaviðræður síðan og Hildur hefur haldið spilunum þétt að sér.

Kostirnir sem hún hefur þó nefnt eru tveir og teygja sig mislangt að miðjunni. Sjálfstæðisflokkur gæti myndað meirihluta með Miðflokki en samanlagt hafa flokkarnir 12 fulltrúa af 23 í borgarstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn gæti líka myndað meirihluta með tveimur fulltrúum Viðreisnar og einum fulltrúa Framsóknar og náð jafn stórum meirihluta. 

Rúmur meirihluti þessara fjögurra flokka er þó úr myndinni, þar sem Viðreisn hefur útilokað samstarf með Miðflokknum. 

Staða Hildar í meirihlutaviðræðum þykir sterk en flokkurinn er langstærstur þeirra sem koma til greina í meirihluta. Kosningaloforð hennar voru bæði mörg og sum hver nákvæm, og sett fram sem tímasett aðgerðaráætlun, en ekki liggur fyrir hversu mörg þeirra rata inn í meirihlutasáttmála. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
1
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár