Fannst rangt að mér gæti liðið vel

Áslaug Pálma­dóttir Thorlacius var fjórtán ára gömul þegar hún missti nána vini með svip­legum hætti. Í kjöl­farið þurfti hún að takast á við sáran missi, flókna sorg og spurn­ingar sem aldrei verður hægt að svara til fulls. Hún segir hér frá því sem hjálp­aði henni.

Fannst rangt að mér gæti liðið vel

Áslaug Pálma­dóttir Thorlacius er æsku­vin­kona Emblu Arnars Katrín­ar­dóttur úr Skerja­firði. Síðustu fimm ár hefur hug­ur­inn oft leitað aftur til sunnu­dags­ins 6. júní 2021. Þetta var síð­asti dag­ur­inn sem Embla lifði, en hún glímdi við veik­indi sem voru þess eðlis að fáir átt­uðu sig á alvar­leik­anum. Þegar for­eldrar hennar reyndu að kalla eftir hjálp tók langan tíma að fá áheyrn og jafn­vel þá skorti víða upp á skiln­ing. 

Síðasti dagurinn 

Þennan dag vörðu þær Áslaug og Embla öllum deg­inum saman. Áslaug var að æfa glímu, en eftir æfingu fór hún að hitta vin­konu sína. Þær horfðu á Anne with an E áður en þær ákváðu að fara út. „Við áttum einn þátt eftir.“ Þær fóru í göngutúr og Embla splæsti í ís. „Þetta var ein­hvern veg­inn venju­legur dagur. Við vorum bara að hafa það gaman saman.“

Að kvöldi fóru þær út að borða á Horninu ásamt tveimur vinum þeirra og Öglu, …

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GSG
    Guðlaug S. Guðlaugsdóttir skrifaði
    Áslaug, takk fyrir að deila reynslu þinni og lífsýn þinni. Ég er viss um að orðin þin munu hjálpa mörgum sem eiga um sárt að binda. Óska þér bjartrar framtíðar.
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Elsku Embla

Samfélagsleg ákvörðun að fækka sjálfsvígum
InnlentElsku Embla

Sam­fé­lags­leg ákvörðun að fækka sjálfs­vígum

Hvert sjálfs­víg kostar sam­fé­lagið um 500 millj­ónir, en lítið hefur verið lagt í for­varnir. Fyrstu aðgerða­á­ætlun gegn sjálfs­vígum var stungið ofan í skúffu. Næstu áætlun fylgdi ekk­ert fjár­magn. Nú er unnið er að fram­gangi þriðju áætl­un­ar­innar. Guðrún Jóna Guð­laugs­dóttir heldur utan um verk­efnið, en hún missti son sinn í sjálfs­vígi þegar hann var á fyrsta ári í MR. „Ég vil ekki trúa því að hann hafi viljað fara frá mér. En ég get vel skilið að hann hafi ekki treyst sér til að lifa.“
Sáu sárin sem hún faldi
ViðtalElsku Embla

Sáu sárin sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár liðin frá frá­falli Emblu Arnars Katrín­ar­dóttur. Andlát hennar var harma­fregn fyrir sam­fé­lagið, en fjöl­skyldan sat eftir með sorg­ina. Löngu áður en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orðið ljóst að hún væri orðin alvar­lega veik, en vegna þess hve þögul veik­indin voru tók tíma að fá áheyrn. Jafnvel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörðuð á fimmtán ára afmæl­is­dag­inn sinn.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár