Líflegar samræður átti sér stað í Tjarnarbíó á milli oddvita Framsóknar og Viðreisnar í gærkvöldi. Einar Þorsteinsson og Björg Magnúsdóttir mættust þar í oddvitasamtölum Heimildarinnar, en Björg var aðstoðarmaður Einars þegar hann var borgarstjóri í Reykjavík.
Skilaboð til Miðflokksins
Bæði tóku þau afgerandi afstöðu gegn málflutningi varaformanns Miðflokksins um regnbogafána í grunnskólum. „Ég held að þegar Snorri er að tala svona þá er svo augljóst að hann hefur aldrei farið inn í skólastofnun og horft framan í börnin og horft á samfélagið hvernig það er. Hann hefur aldrei farið í hinsegin félagsmiðstöðina þangað sem börn leita skjóls vegna þess að þeim líður illa annars staðar og njóta stuðning hvert af öðru,“ sagði Einar.
Þegar kennari er með hálsband í hinsegum litum þá sé það til að sýna barni að það njóti viðurkenningar. Það geti verið haldreipi fyrir þau sem upplifa sig utangarðs.
























































Athugasemdir