Gögn stjórnarráðsins háð sambandi við útlönd

Tölvu­póst­kerfi stjórn­ar­ráðs­ins myndi lík­lega detta út og skjöl og sam­skipta­gögn verða óað­gengi­leg kæmi til rofs á netteng­ingu við út­lönd. Gögn ráðu­neyta eru geymd á er­lend­um net­þjón­um í um­sjá hins banda­ríska Microsoft.

Gögn stjórnarráðsins háð sambandi við útlönd
Í skýinu Tölvupóstar ráðherra, starfsmanna ráðuneyta, ásamt minnisblöðum, dagatölum og vinnugögnum, eru geymdir á erlendum netþjónum hins bandaríska Microsoft. Utanríkisráðherra segir gögnin þó geymd í Evrópu. Mynd: Golli

Stjórnvöld hafa ekki sett sér formlega skilgreiningu á stafrænu fullveldi og tölvupóstkerfi ráðuneyta gæti lamast ef netsamband við útlönd rofnaði. Þetta kemur fram í svari utanríkisráðherra við þingfyrirspurn Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, þingkonu Sjálfstæðisflokks og fyrrverandi utanríkisráðherra.

Ástæðan er sú að ráðuneytin, í gegnum UMBRA – þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins, reiða sig að stórum hluta á skýjalausnir bandaríska tæknifyrirtækisins Microsoft sem eru reknar utan Íslands. Þar eru vistuð tölvupóstsamskipti, skjöl og önnur vinnugögn sem verða til í daglegum rekstri ráðuneytanna. Við alvarlegt rof á netsamgöngum við útlönd myndi aðgangur að þessari þjónustu falla niður.

Í svari sínu viðurkennir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra að engin sameiginleg og formleg skilgreining á stafrænu fullveldi sé til staðar innan ráðuneytis síns. Þótt áhersla sé lögð á öryggi og yfirráð gagna í framkvæmd hefur ekki verið mótuð skýr stefna eða formlegt rammaverk um málaflokkinn.

Ráðherra bendir jafnframt á að afrit gagna séu varðveitt á Íslandi og að unnið sé að uppbyggingu varatengingar um gervihnött í samstarfi við Farice. Afrit af gögnum á skýjaþjónustum Microsoft séu geymd á Íslandi en „ljóst er þó að það myndi taka tíma að koma henni aftur að fullu í rekstur ef alvarleg röskun yrði“.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
1
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Þvættingur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðlileg tengsl við erlenda flokka og hugveitur
4
GreiningMAGA-tengingar Miðflokksins

„Þvætt­ing­ur“ og „tóm steypa“ nú sögð eðli­leg tengsl við er­lenda flokka og hug­veit­ur

Sig­mund­ur Dav­íð Gunn­laugs­son, formað­ur Mið­flokks­ins, sagði um­fjöll­un Heim­ild­ar­inn­ar um tengsl flokks­ins við MAGA-hreyf­ing­una „full­kom­inn þvætt­ing“ en stað­festi fund sinn með Re­públi­kön­um í Gauta­borg. Aðr­ir flokks­menn hafa nú sagt frá tengsl­um við ECR-flokk­inn og Her­ita­ge Foundati­on en eft­ir standa spurn­ing­ar um hver borg­aði.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár