Kabarett
Dans: Sally Cowdin
Leikmynd og leikmunir: Bryndís Magnúsdóttir og Melanie Ubaldo
Tónlistarstjórn: Fannar Sigurðsson og Þorsteinn Jónsson
Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson
Dramatúrgía: Níels Thibaud Girerd og Eyja Sigríður Gunnlaugsdóttir
Búningar: Hulda Kristín Hauksdóttir
Hljóðhönnun : Þórður Gunnar Þorvaldsson
Sviðshreyfingar: Júlía Kolbrún Sigurðardóttir
Leikgervi: Kristjana Rós Sigurðardóttir
Hljómsveit: Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Ingibjörg Azima Guðlaugsdóttir, Þorsteinn Jónsson, Fannar Sigurðsson, Sölvi Kolbeinsson, Friðrik Örn Sigþórsson, Tumi Torfason og Ýmir Haukur Guðjónsson
Þýðing: Karl Ágúst Úlfsson
Stórskemmtilegur og vel tímasettur Kabarett!
Á vormánuðum árið 1973 var söngleikurinn Kabarett fyrst frumsýndur á Íslandi, í Þjóðleikhúskjallaranum. Sýningunni var misvel tekið af gagnrýnendum enda litu margir þeirra á söngleiki sem fremur ómerkilegan pappír. Baldvin Halldórsson olli síðan fjaðrafoki þegar hann hafnaði Silfurlampanum, verðlaunum félags leikdómara, á verðlaunaafhendingu sem fór fram eftir eina sýninguna. Það er önnur saga. Nú ríflega hálfri öld síðar má sjá Kabarett aftur í Þjóðleikhúskjallaranum.
Söngleikurinn fjallar um listafólk og fastagesti á Kit Kat klúbbnum í Berlín stuttu fyrir seinni heimsstyrjöldina. Bandaríkjamaðurinn Clifford Bradshaw kemur til borgarinnar með ritvél í farteskinu og stóra drauma um að verða rithöfundur. Í lestinni á leiðinni til Berlínar hittir hann Þjóðverjann Ernst Ludwig sem aðstoðar Cliff að finna vistarverur og kynnir hann fyrir fyrrnefndum klúbbi þar sem hann hittir Sally Bowles, enska söngkonu sem fer sínar eigin leiðir.
Metnaðurinn sem lagður er í sýninguna er magnaður. Leikhús ókunnuga fólksins samanstendur af risastórum hópi listafólks, aðallega …

















































Athugasemdir