Varar við sköttum eftir vænan hagnað

Æv­in­týra­leg­ur hagn­að­ur hef­ur ver­ið á baðlón­um á Ís­landi síð­ustu ár. Eig­andi Skóg­ar­bað­anna seg­ir fyr­ir­hug­aða skatta­hækk­un „eyði­leggja“ það sem gangi vel. Hann seg­ist ekki „borga út nein­ar arð­greiðsl­ur“, en greiddi út arð á síð­asta birta rekstr­ar­ári og stefn­ir í nán­ast skuld­laust fé­lag á næsta ári.

Framkvæmdastjóri Skógarbaðanna við Eyjafjörð hefur lýst áhyggjum af áformum um að færa virðisaukaskatt af baðlónum í hefðbundið þrep virðisaukaskatts, 24%. Í viðtölum á RÚV og við Vísi.is segir hann reksturinn í uppnámi og fullyrðir að ríkið muni „eyðileggja“ það sem gangi sæmilega „alveg í einum grænum hvelli“.

Ekki kom fram í fréttunum að Skógarböðin högnuðust strax í upphafi um verulegar upphæðir og var greiddur arður til eigenda strax á öðru rekstrarári. Þvert á móti fullyrti eigandinn og framkvæmdastjórinn í gær: „Við sitjum ekki á neinum sjóðum eða einhverjum varaforða eða nokkurn skapaðan hlut. Við borgum ekki út neinar arðgreiðslur eða neitt.“

Mikill hagnaður baðlóna

Rekstur baðlóna, sem byggir á notkun heits vatns, í þessu tilfelli úr hitavatnsæð sem opnaðist við gerð Vaðlaheiðarganga, hefur verið sérstaklega ábatasamur á Íslandi og eru sífellt fleiri baðlón í bígerð. Þannig hagnaðist Sky Lagoon í Kópavogi …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Umdeild gjaldskylda við Reykjanesvita: „Þetta er bara slóði“
UmhverfiðFerðamannalandið Ísland

Um­deild gjald­skylda við Reykja­nes­vita: „Þetta er bara slóði“

Sam­kvæmt lóða­leigu­samn­ingi hef­ur fyr­ir­tæk­ið Reykja­nes Aur­ora heim­ild til að inn­heimta bíla­stæða­gjöld í 500 metra radíus við Reykja­nes­vita þrátt fyr­ir að leigja að­eins hluta af því landi. Eig­and­inn seg­ir að reynt hafi ver­ið á gjald­heimt­una fyr­ir dómi og hún úr­skurð­uð hon­um í vil. „Þetta er bú­ið að vera vand­ræða­mál,“ seg­ir Kjart­an Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæj­ar.
Ósnortin víðerni: „Sorglegt að við getum ekki hugsað lengra fram í tímann“
SkýringFerðamannalandið Ísland

Ósnort­in víð­erni: „Sorg­legt að við get­um ekki hugs­að lengra fram í tím­ann“

„Þetta er nátt­úr­lega bara fyr­ir ákveð­inn hóp og skemm­ir í leið­inni upp­lif­un hinna sem vildu njóta nátt­úr­unn­ar,“ seg­ir Svan­hvít Helga Jó­hanns­dótt­ir um fyr­ir­hug­að­ar fram­kvæmd­ir við Hof­fell­slón. Breyt­ing­ar við lón­ið, Skafta­fell og Von­ar­skarð hafa vak­ið upp sterk við­brögð og spurn­ing­ar um nátt­úru­vernd í og við UNESCO-svæði.
Baðstaður veldur klofningi í Önundarfirði
InnlentFerðamannalandið Ísland

Bað­stað­ur veld­ur klofn­ingi í Ön­und­ar­firði

Halla Signý Kristjáns­dótt­ir, fyrr­um þing­mað­ur, seg­ir bað­stað við Holts­fjöru munu hafa áhrif á fugla­líf og frið­sæld svæð­is­ins. Baðlón séu fal­leg en dýr: „Er það sem okk­ur vant­ar, alls stað­ar?“ Fram­kvæmdarað­ili seg­ir að bað­stað­ur­inn verði lít­ill og að til­lit hafi ver­ið tek­ið til at­huga­semda í um­sagn­ar­ferli.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár