Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent út tilkynningu til leiðréttingar á fréttaflutningi Morgunblaðsins um að Hamas-liðar á lista alþjóðalögreglunnar yfir grunaða hryðjuverkamenn hafi tekist á í Túnahverfi í Reykjavík.
Morgunblaðið birti frétt sína á forsíðu blaðsins í gær með fyrirsögninni „Hamas-liðar á Höfðatorgi“. Sagði í henni að hluti þeirra manna sem handteknir voru eftir grófa líkamsárás í bílakjallara á Höfðatorgi í Reykjavík sé grunaður um að tengjast palestínsku samtökum Hamas. Í farsímum þeirra hafi fundist myndefni sem sýni þá meðhöndla fjölskotariffla af gerðinni AK-47.
„Vegna umfjöllunar Morgunblaðsins og mbl.is um rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á alvarlegri líkamsárás í Túnahverfi í Reykjavík í síðustu viku vill embættið taka sérstaklega fram að á þessu stigi bendir ekkert til þess að þeir sem hafa verið handteknir í málinu hafi tengsl við Hamas-samtökin,“ sagði í yfirlýsingu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. „Þá er það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista alþjóðalögreglunnar yfir …















































Athugasemdir