Nettókostnaðaraukning við að ganga inn í Evrópusambandið gæti numið allt að sjö milljörðum króna á ári. Þetta kom fram á opnum fundi utanríkismálanefndar með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Alþingi í morgun.
Upplýsti Þorgerður að kostnaður við aðild nemi á bilinu 10-15 milljörðum árlega, samkvæmt mati utanríkisráðuneytisins, en á móti falli niður kostnaður við þátttöku í EES, sem nemi árlega um átta milljörðum.
„Við höfum meðal annars verið að skoða til dæmis Finna, þeir borga nettó 0,2 til 0,3 prósent af vergri framleiðslu til Evrópusambandsins,“ sagði hún í svari við spurningu Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, þingkonu Sjálfstæðisflokks. Sambærilegur kostnaður
Þorgerður Katrín setti það svo í samhengi við vexti af skuldum heimilanna. „Hvert prósent vegna upptöku evru myndi skila okkur – hvert prósent – myndi skila okkur 32 milljörðum í lægri vexti,“ sagði hún.
















































Athugasemdir