„Þar var mynd af mér á forsíðu og einhverjar kenningar um það að einhverjir háttsettir Repúblikanar hefðu fengið styrk til að koma og hitta mig. Ég veit ekki hvaða menn þetta eru, herra forseti, og annað eftir því, spunnir miklir þræðir, bullþræðir.“
Þetta sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, í pontu á Alþingi 9. mars. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar, hafði þá í ræðu vísað í umfjöllun Heimildarinnar frá því þremur dögum áður um tengsl flokks hans við erlendar hugveitur og net samtaka sem náið er MAGA-hreyfingu Donalds Trump og fjármagnað af bandarískum milljarðamæringum.
„Ég les um það í miðlum að flokkur hans, Miðflokkurinn, hafi farið á fundi og farið á námskeið hjá tiltekinni hreyfingu vestanhafs og sú hreyfing er ekki síst fræg fyrir það að ýta undir upplýsingaóreiðu, ýta undir öfgar og ýta undir sundrungu í Evrópu,“ sagði Þorgerður Katrín.
Fyrir birtingu á umfjöllun sinni 6. mars …



















































Athugasemdir