Ísland og ESB innsigla varnarsamstarf

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir og Kaja Kallas und­ir­rit­uðu samn­ing í dag.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra undirritaði í dag í Brussel samstarfssamning við Evrópusambandið um öryggis- og varnarmál, ásamt Kaju Kallas, utanríkismálastjóra sambandsins.

Í umfjöllun erlendra fjölmiðla er undirritunin sett í samhengi við hótanir Bandaríkjanna um að yfirtaka Grænland, tvíhliða varnarsamning Íslands við Bandaríkin og væntanlega þjóðaratkvæðagreiðslu um að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný.

Frá því að Donald Trump tók við embætti Bandaríkjaforseta á ný hafa yfirlýsingar hans varpað vafa á hvort Bandaríkin muni virða fimmtu grein Atlantshafssáttmálans, sem kveður á um að árás á einn aðila NATO sé árás á alla, og svo hvort þau muni virða fullveldi bandalagsríkja. Trump hefur sagst vera óbundinn af alþjóðalögum og treysta á eigið siðferði. Yfirstandandi stríð Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran, handtaka á þjóðarleiðtoga Venesúela, hótanir um yfirtöku á Grænland og Kúbu og aftökur á grunuðum fíkniefnasmyglurum á hafi úti endurspegla þá áherslu.

Í samstarfssamningnum milli Íslands og ESB er undirstrikuð önnur nálgun í alþjóðamálum.

„ESB og Ísland halda alþjóðalög í heiðri og standa saman um að verja og styrkja alþjóðareglur, í samræmi við meginreglur sáttmála Sameinuðu þjóðanna. Grundvallarlýðræðisgildi sem byggjast á virðingu fyrir mannlegri reisn, frelsi, jafnrétti, réttarríkinu og mannréttindum eru áfram undirstaða samstarfs ESB og Íslands,“ segir í samningnum.

„Í því óstöðuga öryggisumhverfi sem nú ríkir er þessi mikilvægi áfangi fyrir ESB og Ísland lyftistöng fyrir tengsl sem rista nú þegar djúpt,“ sagði í yfirlýsingu frá Evrópusambandinu í dag.

Þorgerður Katrín sagði í yfirlýsingu Ísland enn treysta á varnarsamninginn við Bandaríkin, líkt og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefur sagt. „Á þeim miklu óvissutímum sem við nú lifum á alþjóðavettvangi er þessi  samstarfsyfirlýsing í takt við okkar áherslur um að styrkja og efla samstarf á sviði öryggis- og varnarmála við okkar helstu bandalagsríki og samstarfsaðila. Við höfum nýlega undirritað viljayfirlýsingar við Þýskaland og Finnland í varnarmálum og nú styrkjum við tengslin við Evrópusambandið. Aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu og varnarsamningurinn við Bandaríkin eru eftir sem áður tvær meginstoðir okkar varna,“ segir Þorgerður Katrín.

Samningurinn kveður á um árlegt sérstakt öryggis- og varnarsamtal á vettvangi embættismanna, möguleg boð Íslands á fundi á háu stigi hjá ESB „þegar við á“, auk sértæks samráðs og upplýsingaskipta. Einnig er sérstaklega tekið fram að skipti á trúnaðarupplýsingum fari fram innan gildandi öryggisramma.

Hluti samningsins snýr að skuldbindingu til að styðja Úkraínu og viðhalda þrýstingi á árásaraðila landsins, sem er Rússland. Þar segir að ESB og Ísland ætli að efla langtímasamstarf sitt um stuðning við Úkraínu, vinna að réttlátum og varanlegum friði á grundvelli alþjóðalaga, halda áfram fjárhagsaðstoð og samvinnu um borgaralegan stuðning og enduruppbyggingu, og samræma betur vinnu um viðurlög gegn þeim sem bera ábyrgð á árásarstríðinu. Einnig á að kanna samvinnu innan verkefna ESB sem styðja Úkraínu.

Samningurinn undirstrikar sérstakt stefnumarkandi mikilvægi Norðurslóða og Norður-Atlantshafs. Þar er kveðið á um aukið reglubundið samráð um stöðu mála á svæðinu, meðal annars um viðnámsþrótt, borgaralegan viðbúnað, vernd mikilvægra innviða, þar á meðal mikilvægra siglinga- og hafinnviða og neðansjávarinnviða, ásamt netógnum, blendingsógnum og tengslum loftslags og öryggis. Þá er einnig stefnt að auknu samstarfi um siglingaöryggi og vernd siglingafrelsis og flugfrelsis. Loks er kveðið á um samstarf um að kynjajafnrétti sé forgangsmál út frá stjórnmálum og öryggismálum.

Meðal ríkja sem Evrópusamandið hefur nýverið gert öryggissamning við eru Albanía, Bretland, Japan, Kanada, Moldóva, Norður-Makedónía, Noregur og Suður-Kórea.

Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandsins er fyrirhuguð 29. ágúst næstkomandi, en þingsályktunartillaga þess efnis liggur fyrir Alþingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MMBS
    Magnús Már Björnsson Sleight skrifaði
    Þetta er stórskrítin fyrirsögn
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Aðild Íslands að ESB

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár