Fulltrúi Miðflokksins í Umhverfis- og mannvirkjaráði Akureyrarbæjar, Bjarney Sigurðardóttir, greiddi atkvæði um að ganga til samninga við vinnuveitanda sinn, Finn ehf., á fundi ráðsins í síðustu viku. Það gerði hún eftir að bæjarlögmaður fann út að hún væri vanhæf gagnvart eiganda fyrirtækisins í öðru máli mánuði fyrr, vegna ættartengsla.
Bjarnveig segist ekki hafa litið svo á að hún hafi verið vanhæf í málinu, þar sem um lægsta tilboð hafi verið að ræða.
Fulltrúi Samfylkingarinnar segist orðlaus og fulltrúi VG segir meirihlutann þurfa að hugsa sinn gang.
Lægsta tilboð hjá frænda varaformanns
Meirihluti umhverfis- og mannvirkjaráðs Akureyrarbæjar samþykkti á fundi sínum þann 10. mars síðastliðinn að ganga til samninga við Finn ehf. í tengslum við göngustíga og þveranir við Borgarbraut. Tilboðið var sannarlega það lægsta og hljóðaði upp á 32 milljónir króna og var rúmlega ellefu milljónum krónum lægra en næsta tilboð.
Eigandi Finns ehf. er náskyldur Bjarneyju, sem er …















































Athugasemdir