Birtíngur
Þýðing, leikgerð og söngtextar: Bergur Þór Ingólfsson Tónlist: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson Leikmynd: Sigríður Sunna Reynisdóttir Búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir Hár og föðrun: Harpa Birgisdóttir Lýsing: Lárus Heiðar Sveinsson Hljóðhönnun: Gunnar Sigurbjörnsson Myndefni til vörpunar: Petr Hloušek
Metnaðarfull sýningin sem hittir ekki alveg í mark en er vonandi merki um spennandi leikhústíma norðan heiða.
Er allt eins og það á að vera? Er mannkynið óbreytanlegt? Höfum við ekki getu til að vera annað en eigingjörn, svikul, ofbeldisfull og siðblind? Miðað við ástand heimsins virðist svarið borðliggjandi. Einmitt þessum spurningum velti Voltaire fyrir sér í háðsdeilunni Birtíngi (Candide, ou l'Optimisme) sem kom út árið 1759. Næstum því þrjú hundruð árum seinna grípur Leikfélag Akureyrar þessar spurningar á lofti enda eru þær alveg jafn viðeigandi í dag því ekkert nýtt er undir sólinni.
Níels Thibaud Girerd leikur Birtíng, ungan og einfaldan mann sem skolast á milli heimsálfa leiddur áfram af tilfinningu sem hann telur vera ást. Á ferð sinni um heimsins horn kynnist hann allskonar fólki, sem vill honum yfirleitt eitthvað illt, og lendir í ótrúlegum ævintýrum, yfirleitt fremur hörmulegum. Snúið er að leika einfeldning, hvað þá í slíkri prakkarasögu þar sem lítið virðist á hann fá nema endurtekni missirinn á hans heittelskuðu. Níels tekst ágætlega …
















































Athugasemdir