Sjálfstæðisflokkur nartar áfram í hæla Samfylkingar

Sam­fylk­ing­in er með mest fylgi í borg­inni sam­kvæmt nýrri könn­un Maskínu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn er þó ekki langt und­an. Fylgi beggja dal­ar á milli mán­aða í borg­ar­vita Maskínu.

Sjálfstæðisflokkur nartar áfram í hæla Samfylkingar

Samfylkingin mælist með mest fylgi í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýjum Borgarvita Maskínu eða 24 prósent. Sjálfstæðisflokkurinn kemur þar rétt á eftir með 22,7 prósent en fylgi beggja flokka hefur dalað eilítið frá síðustu mælingu í janúar.

Í nóvember mældist Sjálfstæðisflokkurinn stærstur í borginni hjá Maskínu, en það er eina skiptið síðustu sex mánuði sem Maskína mælir Sjálfstæðisflokk stærri en Samfylkingu.

Viðreisn kemur næst með 13,5 prósenta fylgi en flokkurinn hefur mælst á bilinu 14,9 prósent (í september) og niður í 11,5 prósent (í nóvember). Miðflokkurinn hefur hins vegar verið á hægri en öruggri siglingu upp á við og mælist nú með 11 prósent.

Hið nýlega stofnaða Vinstri, sem er sameinað framboð Vors til vinstri og Vinstri grænna, er með 9,1 prósent fylgi. Vor til vinstri var fyrst mælt í könnunum Maskínu 1. janúar en frá og með 25. febrúar mældi Maskína stuðning við Vinstrið.

Fylgistölur aftur í tímann eru samanlagt fylgi Vinstri grænna og Vors til vinstri. Stuðningur við sameinað framboð Vinstris er töluvert meiri en samanlagt fylgi fylkinganna tveggja var fyrir.

Píratar mælast nú með 5,5 prósenta fylgi eftir að hafa mælst með 3 prósent í síðasta mánuði. Þá tekur fylgi Framsóknar lítið stökk upp á við – fer úr 4,4 prósentum upp í 5,1.

Fylgi Sósíalistaflokksins og Flokks fólksins heldur áfram að dala og er komið niður í 3,7 og 3,4 prósent.

Könnunin fór fram 1.–27. febrúar og voru yfir þúsund manns sem tóku afstöðu. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Hvar eru skattgreiðslur þeirra auðugustu?
2
Hátekjulistinn

Hvar eru skatt­greiðsl­ur þeirra auð­ug­ustu?

Marg­ir þeirra efstu á Há­tekju­lista Heim­ild­ar­inn­ar í ár seldu fyr­ir­tæki sem þeir höfðu byggt upp í ára­tugi og fengu ein­skipt­is hagn­að. Kerf­ið ger­ir hins veg­ar auð­ug­ustu Ís­lend­ing­um auð­velt að halda arði og hagn­aði af eigna­sölu inni í fé­lög­um sín­um án þess að greiða af þeim skatt. Rík­ið borg­aði út­svar þeirra á list­an­um sem ein­göngu voru með fjár­magn­s­tekj­ur.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár