Ungt Miðflokksfólk hefur undanfarið setið fundi erlendis þar sem áhrifavaldar úr MAGA-hreyfingunni og aktífistar úr evrópskum hægri-öfgahreyfingum deila með þeim sviðinu.
Frambjóðandi í 4. sæti á lista Miðflokksins til borgarstjórnar, Hlédís Maren Guðmundsdóttir, hefur sem fulltrúi Miðflokksins sótt viðburði á vegum hugveitnanna New Direction og Nordic Sidebar á Norðurlöndunum. Nordic Sidebar er hugveita sem Katie Hagström, stjórnarmaður Nordic Republicans og milliliður við Trump-tengdu samtökin Turning Point, stýrir.
Á slíkum fundi í Helsinki í febrúar var Hlédís Maren í viðtali hjá James O’Keefe, alræmdum aktífista frá Bandaríkjunum sem hefur dreift fölskum upplýsingum um að forsetakosningunum 2020 hafi verið stolið frá Donald Trump.
Heimildin hefur áður greint frá því að alþjóðafulltrúi Miðflokksins sem einnig er í framboði í Reykjavík, Breki Atlason, sé Íslandsfulltrúi Students for Liberty, félags sem styrkt er í gegnum net alþjóðlegra samtaka sem fá fjármagn sitt að hluta frá bandarískum …
















































Athugasemdir (2)