Arion banki Yfir 800 starfs­menn fá kaup­rétt í nýrri áætlun. Mynd: Heiða Helgadóttir

Starfsmenn Arion banka fá nýjan kaupréttarpakka

Kjarabót fyrir banka­starfs­menn í vax­andi hagn­aði.

Samkvæmt nýrri kaup­rétt­ar­stefnu Arion banka, sem kynnt var í lok dags, fá 837 starfs­menn bank­ans og dótt­ur­fé­laga að gera kaup­rétt­ar­samn­inga.

Í þeim felst að kaupa hluti um það bil á núver­andi gengi bank­ans næstu fimm árin. Samtals gildir kaup­réttur fyrir tæp­lega 6,3 millj­ónir hluta á ári, sem jafn­gildir á gengi dags­ins í dag um 1,5 millj­örðum króna árlega.

„Er mark­mið áætl­un­ar­innar að sam­þætta hags­muni starfs­fólks við lang­tíma­hags­muni sam­stæð­unnar,“ segir í yfir­lýs­ingu bank­ans.

Kaup­rétt­ur­inn tryggir að starfs­menn­irnir geta inn­leyst hagnað ef gengið hækkar á tíma­bil­inu. Gengi bank­ans hefur hækkað um 26% síð­ustu 12 mán­uði í kaup­höll­inni. Hækki það aftur um sama hlut­fall yrði mögu­legur sam­an­lagður sölu­hagn­aður starfs­manna 390 millj­ónir króna fyrir hækk­un­ina eina og sér.

Þá er horft fram hjá arð­greiðslum og áhrifum af end­ur­kaupum hluta­bréfa, sem bank­inn stundar. Bankinn stefnir á að greiða 11,5 krónur í arð fyrir hvern hlut og yrðu því arð­greiðslur til starfs­manna vegna kaup­réttar 72 millj­ónir króna á ári fyrir kaup­rétt hvers árs.

Arion banki hagn­að­ist um 32,5 millj­arða króna í fyrra og jókst hagn­að­ur­inn úr 26,1 millj­arði króna.

Gengi Arion er í dag 198,5 en kaup­rétt­ur­inn gefur rétt til að kaupa síðar á geng­inu 199,61, óháð því hvert gengið verður þá. Eldri kaup­rétt­ar­samn­ingar fyrir árið 2026 heim­ilar starfs­fólki að kaupa mis­marga hluti á geng­inu 140,56, 143,36 og 155,93. Sölu­hagn­aður af þeim kaupum miðað við gengið í dag er sam­tals 39 millj­ónir króna, fyrir utan arð­greiðslur og end­ur­kaup.

Aðal­fundur Arion banka verður hald­inn 11. mars næst­kom­andi og verður þá tekin ákvörðun um arð­greiðslur.

Kjósa
-3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÓS
    Ólöf Sverrisdóttir skrifaði
    Nú nú á að gefa starfsfólki bankans vextina sem ég er að borga...
    0
  • KÞ
    Kristín Þorsteinsdóttir skrifaði
    Ballið byrjað.
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Það er bara ágætt að sumir skuli hafa nóg fyrirsaltinu í grautinn sinn þót fullt af fólki berjist í bökkum með allt sitt hér á Íslandi segi ég nú bara!
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár