Félags- og fjölskylduráðgjafi mat siðvitund Margrétar Höllu Löf Hansdóttur, á við þroskastig barns frekar en ungmennis þegar kom að samkennd hennar gagnvart öldruðum foreldrum sínum.
Þetta kemur fram í dómsniðurstöðu Héraðsdóms Reykjaness þar sem Margrét var dæmd í sextán ára fangelsi fyrir að bana föður sínum í apríl á síðasta ári. Í úrskurðinum, sem féll skömmu fyrir jól, kemur ennfremur fram að hún hafi átt erfitt með að standa á eigin fótum, hún hafi ekki enst í vinnu né skóla og treyst alfarið á foreldra sína fjárhagslega. Sjálf lýsir Margrét sér með mjög jákvæðum hætti í viðtali í þætti Þóru Tómasdóttur á RÚV, Sögur úr raunveruleikanum. Lætur Margrét í það skína að hún sé opin og glaðlynd líkt og Suður-Evrópubúar koma mögulega fyrir í steríótýpískri mynd.
„Ég er svolítið svona eins og Spánverji eða Ítali í hjartanu. Elska að dansa og er rosa opin og svona. Finnst gaman að …
















































Athugasemdir