Tveir starfsmenn Heilsugæslu Miðbæjar smitaðir af berklum

Tveir starfs­menn á Heilsu­gæslu Mið­bæj­ar hafa greinst með berkla. Hvor­ug­ur er með ein­kenni og þeir eru ekki smit­andi. Heilsu­gæsla höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins hef­ur skim­að fram­lín­u­starfs­fólk í ör­ygg­is­skyni og hyggst halda því áfram.

Tveir starfsmenn Heilsugæslu Miðbæjar smitaðir af berklum

Tveir starfsmenn á Heilsugæslunni Miðbæ greindust með berklasmit við skimun á starfsfólki stöðvarinnar að því er segir í tilkynningu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Fólkið er þó ekki smitandi og sýnir engin einkenni berkla. „Skjólstæðingar stöðvarinnar hafa því ekki verið útsettir fyrir smiti í samskiptum við starfsmennina.“

Framlínustarfsfólk HH var skimað fyrir berklum í öryggisskyni í kjölfar þess að berklar greindust hjá starfsfólki bráðamóttökunnar nýlega. Fyrst á þeim starfsstöðvum þar sem talið var líklegt að starfsfólk hefði verið í samskiptum við einstaklinga sem gætu verið smitaðir af berklum.

„Í ljós kom að tveir starfsmenn Heilsugæslunnar Miðbæ eru með berklasmit. Smit þýðir að bakterían greindist í blóði starfsmannanna. Þeir eru ekki með nein einkenni og eru ekki smitandi. Starfsmennirnir tveir fara nú í frekari rannsóknir og í kjölfarið í viðtal og mögulega meðferð hjá smitsjúkdómalækni.“

Berklar smitast við langvarandi eða náin samskipti við einstakling sem hefur virka eða smitandi berkla í lungum. Tekið er fram í tilkynningu að þeir smitist ekki við snertingu, af yfirborðum eða með því að nota áhöld eða fatnað sem smitaður einstaklingur hefur notað. 

Áfram verður haldið að skima framlínustarfsfólk Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. 

Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
1
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.

Mest lesið í mánuðinum

Viðskiptasaga nýs oddvita Miðflokksins
4
Nærmynd

Við­skipta­saga nýs odd­vita Mið­flokks­ins

Ari Edwald, fram­bjóð­andi Mið­flokks­ins í Reykja­vík, á að baki fer­il í við­skipta­líf­inu þar sem um­deilt sam­starf við Jón Ás­geir Jó­hann­es­son, stuðn­ing­ur við ESB-að­ild, um­mæli um að velta sekt­ar­greiðsl­um MS yf­ir á al­menn­ing og út­rás til Rúss­land hafa vak­ið um­tal. Hann hagn­að­ist á „óhagn­að­ar­drifna leigu­fé­lag­inu“ Heima­völl­um og stýrði fram­boði Dav­íðs Odds­son­ar til for­seta sam­hliða for­stjóra­starfi MS.
Ari naut skattfríðinda í Portúgal
6
Stjórnmál

Ari naut skatt­fríð­inda í Portúgal

Ari Edwald, sem skip­ar fyrsta sæti á lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík, fékk stöðu sér­fræð­ings við flutn­inga lög­heim­il­is til Portúgal sem veitti hon­um ým­is skatt­fríð­indi. Hann gekk í des­em­ber frá kaup­um að íbúð í Garða­bæ fyr­ir 183 millj­ón­ir króna en flutti í gær lög­heim­ili sitt í leigu­íbúð lög­manns í mið­borg­inni. „Það er bráða­birgð­ar­ráð­stöf­un,“ seg­ir Ari.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár