Veltir upp hvort innflytjendur á Spáni skaði hagsmuni Íslands

Snorri Más­son, vara­formað­ur Mið­flokks­ins, vill að dóms­mála­ráð­herra svari því hvort ís­lensk stjórn­völd þurfi að beita sér gegn opn­ari inn­flytj­enda­stefnu inn­an Schengen eða Evr­ópu­sam­bands­ins í ljósi ís­lenskra hags­muna.

Veltir upp hvort innflytjendur á Spáni skaði hagsmuni Íslands

Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, hefur innt Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra eftir því í skriflegri fyrirspurn hver afstaða hennar sé til aðgerðrar spænskra stjórnvalda að veita allt að 500 þúsund einstaklingum „sem dvelja og starfa á Spáni án fullnægjandi heimildar“ tímabundið dvalar- og atvinnuleyfi að uppfylltum skilyrðum. Vill hann fá að vita hvort aðgerðin gæti haft áhrif á framkvæmd Schengen-samstarfsins.

Vill Snorri þá fá að vita hvort ráðherra telji að íslensk stjórnvöld þurfi að beita sér gegn opnari innflytjendastefnu aðildarríkja Schengen-samstarfsins eða Evrópusambandsins „í ljósi hagsmuna Íslendinga“.

Tímabundið dvalarleyfi fyrir erlenda ríkisborgara

Í janúar var fjallað um það að slík áform væru uppi hjá ríkisstjórn Spánar. Næðu þau fram að ganga fengju erlendir ríkisborgarar sem komu til Spánar fyrir árslok 2025 og gætu sýnt fram á minnst 5 mánaða dvöl þar að sækja um dvalar- og atvinnuleyfi til eins árs. Þá er gerð krafa um hreint sakarvottorð. Ráðherra innflytjendamála þar í …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Kalla ég Snorra másonmásandi ekkeregvónaðuppnefnaannaðfólkþótt þaðhafiveriðgertmeðmig!eneinsogegsegimiðflokkurinnfelluralvegaðmínumskoðunumhúrrafyrirhopnum hannlengilifi!!
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Alveg er ég honum Snorra másandi innilega sammála í þessum útlendinga málum sem Ísland stendur fyrir ídag svo sannarlega!!
    -1
  • Birgit Braun skrifaði
    Æjæ, ætlar Snorri ss að senda eiginkonuna sína og eða fjölskyldumeðlimur hennar " heim til sín"? Ég kann illa við svona skinhelgi.
    3
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Geyið að vera svona þjakaður af hræðslu við annað fólk.
    4
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Mér er gróflega misboðið. Hafa Miðflokksmenn enga sómakennd?
    13
    • SIB
      Sigurður I Björnsson skrifaði
      Nei þeir hafa hana ekki, þetta er svona prjónabrókar fasismi.
      8
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þessi Snorri Másson er eins og illa heppnuð prótótípa af Grok .
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Fólk er hrætt”
2
Viðtal

„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem ver­ið er að fylgj­ast með þér, þá er það veru­leiki sem þú þarft að díla við,” seg­ir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, Mið-Aust­ur­landa­fræð­ing­ur við Williams Col­l­e­ge í Banda­ríkj­un­um og gesta­pró­fess­or við guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ – sem ný­ver­ið flutti hér á landi fyr­ir­lestra, ann­an um Ír­an og eld­fimt ástand vegna inn­rás­ar þar, hinn um að­þrengt aka­demískt frelsi í Banda­ríkj­un­um.
Tæknifrjóvgar býflugur fyrir austan
5
Viðtal

Tækni­frjóvg­ar bý­flug­ur fyr­ir aust­an

Sæ­unn Vig­dís Sig­valda­dótt­ir tækni­frjóvg­ar bý­flug­ur aust­ur í Hall­ormstaða­skógi. Hún fór til Banda­ríkj­anna síð­ast­lið­ið sum­ar til að læra að gera slíkt og gekk nám­ið það vel að henni var boð­ið starf við það í kjöl­far­ið vest­an­hafs. Hún þáði þó ekki þá vinnu að sinni, held­ur vill ein­beita sér að því að styrkja ís­lenska bý­flugna­stofn­inn sem hún seg­ir að sé mjög ólík­ur öðr­um stofn­um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Það hentar þeim ekki að almenningur í landinu vakni“
3
Viðtal

„Það hent­ar þeim ekki að al­menn­ing­ur í land­inu vakni“

Þor­gerð­ur Katrín Gunn­ars­dótt­ir ut­an­rík­is­ráð­herra seg­ir Sjálf­stæð­is­flokk og Mið­flokk beita áróðri gegn Evr­ópu­sam­bands­að­ild sem komi beint úr hand­bók Nig­el Fara­ge. Segi þjóð­in „já“ geti Ís­land orð­ið að­ild­ar­ríki í árs­lok 2028 en ef „nei“ verð­ur svar­ið komi það til kasta Al­þing­is að draga um­sókn­ina frá 2009 til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Leynifundur Sigmundar Davíðs með Repúblikönum
4
RannsóknMAGA-tengingar Miðflokksins

Leynifund­ur Sig­mund­ar Dav­íðs með Re­públi­kön­um

Þrýsti­hóp­ur MAGA-hreyf­ing­ar­inn­ar borg­aði fyr­ir Norð­ur­landa­ferð hóps hátt­settra Re­públi­kana til að hitta Sig­mund Dav­íð Gunn­laugs­son og aðra áhrifa­menn af hægri væng stjórn­mál­anna. Með­al skipu­leggj­enda voru að­il­ar grun­að­ir um að reyna að stela for­seta­kosn­ing­un­um 2020 fyr­ir Don­ald Trump. Heim­ild­in rek­ur tengsl hug­veitna sem fjár­magn­að­ar eru af banda­rísk­um auð­mönn­um til Ís­lands.
Greiddu fyrrverandi oddvita 7 milljónir eftir að Framsókn fékk bæjarstjórastólinn
6
Stjórnmál

Greiddu fyrr­ver­andi odd­vita 7 millj­ón­ir eft­ir að Fram­sókn fékk bæj­ar­stjóra­stól­inn

Ný­stofn­að fé­lag Ág­ústs Bjarna Garð­ars­son­ar, fyrr­ver­andi odd­vita Fram­sókn­ar­flokks­ins í Hafnar­firði, fékk greiðsl­ur fyr­ir ráð­gjafa­störf eft­ir að flokks­bróð­ir hans, Valdi­mar Víð­is­son, tók við sem bæj­ar­stjóri. Ráð­gjafa­störf fyrr­um bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, Har­ald­ur Sverris­son, hóf­ust í tíð Rósu Guð­bjarts­dótt­ur, flokks­syst­ur hans.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár